Viðskipti erlent

Danmörk eina landið í ESB sem selur meiri orku en það kaupir
Danmörk er eina landið innan Evrópusambandsins sem selur meiri orku til annarra landa en keypt er til notkunar innanlands.

Langstærsta flugfélag heimsins í burðarliðnum
Bandarísku flugfélögin American Airlines og US Airways hafa ákveðið að sameinast og þar sem skapa langstærsta flugfélag heimsins.

ESB og BNA ætla í fríverslunarviðræður
Evrópusambandið og Bandaríkin ætla að hefja formlegar viðræður um fríverslunarsamning. BBC fréttastofan segir að um verði að ræða stærsta fríverslunarsamning sögunnar.

Apple þróar snjall-úr
Bandaríska stórblaðið The New York Times greindi frá því á dögunum að tæknirisinn Apple hefði í hyggju að þróa nýstárleg snjall-úr. Samkvæmt heimildarmönnum blaðsins mun úrið keyra uppfærða útgáfu af iOS-stýrikerfinu sem einnig má finna í iPhone-snjallsímanum og iPad-spjaldtölvunni.

Kínverjar fjárfesta í dönskum minkabúum í fyrsta sinn
Í fyrsta sinn í sögunni hafa Kínverjar fjárfest í minkabúum í Danmörku en þeir hafa á síðustu árum verið stærstu kaupendur danskra og íslenskra minkaskinna.

Forsvarsmenn Barclays afvegaleiddu hluthafa
Forsvarsmenn breska Barclays bankans afvegaleiddu hluthafa og almenning þegar upplýst var um eina af stærstu fjárfestingunum í sögu bankans. Þetta sýnir úttekt sem BBC fréttastofan gerði á málinu. Bankinn tilkynnti árið 2008 að Sheikh Mansour, eigandi knattspyrnuliðsins Manchester City, hefði ákveðið að kaupa fyrir meira en 3 milljarða punda í bankanum, eða um 600 milljarða íslenskra króna. En BBC hefur nú komist að því að peningarnir komu í raun úr ríkissjóði Abu Dhabi en ekki frá sjeiknum sjálfum

Meðallaun í norska olíuiðnaðinum 1,7 milljónir á mánuði
Meðallaun í norska olíuiðnaðinum samsvara því að hver starfsmaður þar sé með 1,7 milljónir króna á mánuði eða yfir 20 milljónir króna í laun á ári.

Skotum ber að halda breska pundinu þrátt fyrir sjálfstæði
Fari svo að Skotar ákveði að slíta tengsl landsins við Stóra-Bretland í þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta ári ber sjálfstæðu Skotlandi að halda áfram breska pundinu sem gjaldmiðli sínum.

Seldu minkaskinn fyrir 85 milljarða
Öll fyrri sölumet voru slegin á minkakskinnauppboðinu hjá Kopenhagen Fur í Kaupmannahögn sem lauk um helgina.

Forfaðir spendýranna fundinn
Skepnan sem öll fylgjuspendýr eru komin af, allt frá fílum til manna, er nú loks fundin.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar áfram
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka og er verðið á tunnunni af Brent olíunni nú komið í tæplega 118 dollara. Hefur verðið ekki verið hærra síðan í fyrravor.

FIH bankinn skilaði 23 milljarða tapi í fyrra
FIH bankinn í Danmörku skilaði rétt rúmlega milljarðs danskra króna tapi á síðasta ári eða sem svarar til 23 milljarða króna.

HMV lokar 66 verslunum
Breska búðarkeðjan HMV hefur tilkynnt um lokun 66 verslana á næstu mánuðum, en fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta um miðjan síðasta mánuð.

Danske Bank skilaði 108 milljarða hagnaði í fyrra
Hagnaður Danske Bank eftir skatta í fyrra nam 4,7 milljörðum danskra kr. eða um 108 milljörðum kr.

Rekstrarhagnaður Statoil 4.600 milljarðar í fyrra
Rekstrarhagnaður norska olíurisans Statoil nam rúmlega 200 milljörðum norskra króna á síðasta ári eða sem svarar til 4.600 milljarða króna.

Leiðtogar ESB reyna að ná samkomulagi um fjárlög sambandsins
Í dag hefst tveggja daga leiðtogafundur Evrópusambandsins en á honum ætla leiðtogarnir að reyna að semja um fjárlög sambandsins til næstu sjö ára. Sambærilegur fundur í nóvember s.l. skilaði engum árangri.

Írar samþykkja að gera risabankann IBRC gjaldþrota
Samþykkt var með miklum meirihluta í nótt á írska þiningu að lýsa risabankann IBRC gjaldþrota.

Vincent Tchenguiz vill 200 milljónir punda frá SFO
Íranski kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz hefur stefnt bresku efnahagsbrotalögreglunni SFO. Hann krefst þess að fá tvö hundruð milljónir í skaðabætur, eða það sem nemur tæpum fjörutíu milljörðum króna. Mál SFO gegn Tchenguiz var fellt niður á síðasta ári en það var í tengslum við hrun íslenska bankakerfisins, einna helst Kaupþings.

Nær 200 vínbændur verða að hætta búskap í Beaujolais
Allar líkur eru á að tæplega 200 vínbændur í héraðinu Beaujolais í Frakklandi verði að hætta búskap og selja jarðir sínar.

ESB rannsakar ríkisstuðning við FIH bankann í Danmörku
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gert alvarlegar athugasemdir við hvernig dönsk stjórnvöld ákváðu að bjarga FIH bankanum frá hruni á síðasta ári.

Liborvaxtasvindlið kostar RBS 100 milljarða í sekt
Royal Bank of Scotland (RBS) mun í dag tilkynna um dómsátt vegna þáttar bankans í Liborvaxtasvindlinu svokallaða.

Kostnaður SFO alls 745 milljónir króna
Rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar (SFO) á falli Kaupþings hefur kostað stofnunina 745 milljónir króna. Tveir þriðju hlutar þeirrar upphæðar er tilkominn vegna þess að SFO var gert að greiða málskostnað bræðranna Vincents og Roberts Tchenguiz, sem voru á meðal þeirra sem voru til rannsóknar.

Bandarísk stjórnvöld stefna S&P
Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's býst við því að bandaríska ríkið muni lögsækja fyrirtækið vegna einkunna sem fyrirtækið gaf fasteignalánum, árið 2007, í aðdraganda að fjármálakreppunni. Um er að ræða svokölluð undirmálslán sem hafa jafnan verið talin ein af helstu orsökum fjármálakreppunnar sem skók allan heiminn.

Rajoy ætlar að birta yfirlit yfir eignir sínar
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, segir að stjórnvöld muni leggja meiri áherslu á gagnsæi og baráttu gegn spillingu, með það fyrir augum að endurheimta traust íbúa landsins, en mótmæli í stærstu borgum Spánar, þar sem megininntakið er barátta gegn spilltri stjórnsýslu, hafa verið fjölmenn undanfarna mánuði.

Ítalska mafían með meiri veltu en orkurisinn Eni
Ný úttekt á vegum Sameinuðu þjóðanna sýnir að veltan af glæpastarsemi ítölsku mafíunni nemur 116 milljörðum evra á ári. Þessi upphæð er hærri en nemur veltunni hjá orkurisanum Eni sem er stærsta fyrirtæki landsins.

Barclays bankinn í rannsókn vegna al-Thani fléttu
Rannsókn er hafin á viðskiptum Barclays bankans í Bretlandi við al-Thani fjölskylduna í Katar en þessi viðskipti eru hliðstæð þeim sem Kaupþing átti við einn af meðlimum þessarar fjölskyldu korteri fyrir hrunið 2008.

Verulega dró úr hagnaði Facebook
Verulega dró úr hagnaði Facebook á fjórða ársfjórðungi í fyrra miðað við sama tímabil árið áður.

Nýtt grænlenskt flugfélag í burðarliðnum
Nýtt grænlenskt flugfélag er í burðarliðnum en það á að heita Greenland Express.

Tunnan af Brent olíunni komin yfir 115 dollara
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka þótt dregið hafi úr hækkun þess á Asíumörkuðum í nótt í kjölfar nýrra upplýsinga um að landsframleiðsla Bandaríkjanna hafi dregist aðeins saman á fjórða ársfjórðungi síðasta árs.

Ástandið á Spáni versnar enn
Landsframleiðsla á Spáni dróst saman á þriðja ársfjórðungi ársins í fyrra um 0,7 prósent frá ársfjórðunginum á undan, og um 1,8 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Þá sýna nýjustu tölur um smásöluverslun á Spáni að hún var mun verri í desember á síðasta ári heldur en árið 2011, en smásalan dróst saman um 10,7 prósent milli ára, að því er segir í frétt á vef Wall Street Journal í dag.