Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. ágúst 2026 08:07 Tollarnir eru til marks um verulega aukningu á spennu milli nágrannaríkjanna vestanhafs. AP/Mark Schiefelbein Bandaríkin hafa sett fimmtíu prósenta tolla á ýmsar kanadískar vörur þar í landi eftir að nokkurra daga samningaviðræður nágrannaríkjanna á milli runnu í sandinn. Forsætisráðherra Kanada heitir sams konar tollum á bandarískar vörur.
Samninganefndir höfðu átt í hörðum viðræðum við Bandaríkin frá því í júlí þegar Trump hótaði að leggja fimmtíu prósenta toll á innfluttar kanadískar vörur og áttu þeir að taka gildi á miðvikudaginn síðastliðinn. Trump hafði tímabundið frestað gildistöku boðaðra refsitolla vegna samningaviðræðna. Hann sagði að samningsaðilar væru á lokametrunum við að undirrita samning sem hagnaðist báðum ríkjum. Sjá einnig: Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, stöðvaði viðræðurnar í gær og sagði að í þeim hefði ekki tekist að tryggja hagsmuni landsins. Breytingar Bandaríkjanna á tillögum á elleftu stundu væru ósanngjarnar og óhagkvæmar. Carney sagðist muna leggja gagnkvæma tolla á nágranna sinn í suðri, „dal fyrir dal.“ Jamieson Grerr, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, sagði í yfirlýsingu að Kanada hefði neitað að ganga frá samningi á þeim forsendum sem höfðu verið fyrr í vikunni og með því hefði ríkið raskað því jafnvægi sem hafði verið náð. Spenna milli þessara tveggja stóru viðskiptaþjóða hefur kraumað undir niðri síðan Trump tók aftur við embætti í janúar á síðasta ári og hóf víðtæka refsitollastefnu segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins.
Donald Trump Bandaríkin Kanada Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira