Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júní 2026 19:29 Hið írska flugfélag Ryanair er eitt stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu. Getty Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur verið skikkað til þess að breyta reglum sínum um sætaskipan fyrir fjölskyldur og leyfa foreldrum að sitja við hlið ungra barna sinna án þess að greiða gjald fyrir sætapöntun. Er þetta í kjölfar rannsóknar sem breska samkeppnis- og markaðseftirlitið (CMA) hóf nýverið til að kanna hvort stefna flugfélagsins, sem eftirlitið segir að leiði venjulega til gjalds upp á átta pund, eða þrettán hundruð krónur, hvora leið, sé „ósanngjörn“ samkvæmt neytendalögum.
Fullorðnir sem ferðast með börn og vilja ekki greiða fyrir pantað sæti munu nú fá upplýsingar um úthlutuð ókeypis sæti eftir innritun, sem er í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) haft eftir forsvarsmönnum Ryanair, í samræmi við flest önnur evrópsk flugfélög. Þá hefur forstjóri flugfélagsins, Michael O'Leary, ítrekað sett út á rannsóknina og í yfirlýsingu sem forsvarsmenn félagsins sendu frá sér þegar rannsóknin hófst, um miðjan júní, segir meðal annars „Ryanair hlakkar til að hrekja þessar fölsku fullyrðingar eftirlitsins í þessari fölsku rannsókn“. Foreldrar rukkaðir svo að reglur væru uppfylltar Fyrir breytingarnar voru reglur flugfélagsins þannig að fullorðnir sem hugðust ferðast með börn urðu að sitja með barni sínu ef það væri á aldrinum tveggja til ellefu ára, og var það útfært með því sem flugfélagið kallaði „skyldusæti fyrir fjölskyldur“ sem greiða þurfti sérstakt gjald fyrir. Snerist rannsóknin því um að skoða hvort „nálgun flugfélagsins á sætapöntunum gæti þýtt að foreldrar væru rukkaðir fyrir að flugfélagið uppfylli skyldur sínar varðandi öryggi barna og fötlun eins og kveðið er á um í flugreglum,“ en grunur lék á um að framkvæmdin væri ekki í samræmi við neytendalög. Ryanair hafi verið eina stóra breska flugfélagið sem rukkaði slíkt gjald á meðan önnur flugfélög bjóði upp á að börn sætu við hlið foreldris eða forráðamanns án nokkurs gjalds. Ryanair sagði síðar að stefna sín hefði veitt fjölskyldum vissu um hvar þær myndu sitja við bókun, sem þær hefðu metið mikils. Það sagði að „ókeypis foreldrasætin“ yrðu nú fáanleg aftast í flugvélinni, þar sem fremri raðir eru yfirleitt pantaðar.
Flug Írland Neytendur Samgöngumál Bretland Mest lesið Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira