Viðskipti erlent
206 207 208 209 210 211 212 213 214 … 334 ›
Pete Townshend ekki sáttur með iTunes Pete Townshend, gítarleikari The Who, biðlaði til Apple um að nota úrræði sín og fjármuni til að hjálpa nýjum hljómsveitum að komast á framfæri. Hann sagði að margmiðlunarforritið iTunes væri einungis til þess gert að blóðga listamenn eins og stafræn vampíra. Viðskipti erlent 1.11.2011 09:24
Danske Bank ætlar að segja upp 2.000 starfsmönnum Danske Bank, stærsti banki Danmerkur ætlar að segja upp um 2.000 starfsmönnum á tímabilinu 2012 til 2014. Með þessu er ætlunin að spara um 2 milljarða danskra króna eða rúm 42 milljarða króna í rekstrarkostnaði. Viðskipti erlent 1.11.2011 08:14
Grikkir borguðu látnu fólki 1.300 milljarða í lífeyri Stærsti lífeyrissjóður Grikklands hefur viðurkennt að hafa á síðustu 10 árum greitt tugþúsundum af látnu fólki lífeyrir sem nemur allt að 8 milljörðum evra eða nær 1.300 milljörðum króna. Viðskipti erlent 1.11.2011 07:25
Þjóðaratkvæði um skuldamál Nýgert samkomulag um skuldavanda Grikklands verður sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkomulagið felur í sér skuldaafskrift og nýtt lán, en niðurskurðaraðgerðirnar sem því fylgja eru illa séðar meðal almennings. Papandreú forsætisráðherra segist fullviss um að þjóðin muni taka rétta ákvörðun um framtíð landsins. Ekki er vitað hvenær kosið verður en líklegt er talið að það verði í næstu viku. - þj Viðskipti erlent 1.11.2011 07:00
Samsung er stærsti snjallsímaframleiðandi í heimi Samkvæmt ársfjórðungstölum Samsung jukust vörusendingar um 44% og talið er að sala á fjórða ársfjórðungi verði mikil. Þetta þýðir að Samsung er nú stærsti snjallsímaframleiðandi veraldar og skákar jafnvel tölvurisanum Apple. Viðskipti erlent 31.10.2011 13:55
Vandamál með rafhlöðu iPhone 4S Þrátt fyrir að nýjasti snjallsími Apple sé afar vinsæll, bæði hjá gagnrýnendum og kaupendum, þá hafa margir lýst yfir vonbrigðum sínum með rafhlöðu símans. Viðskipti erlent 31.10.2011 11:45
Rússar vilja lána evruríkjum 10 milljarða dollara Rússnesk stjórnvöld eru reiðubúinn til að lána evruríkjunum allt að 10 milljarða dollara eða um 1.140 milljarða króna til að berjast gegn skuldakreppunni. Lánið myndi fara í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Viðskipti erlent 31.10.2011 09:36
Ekkert að því að leita til Kínverja Fráfarandi bankastjóri Seðlabanka Evrópu, Jean-Claude Trichet, segir það vera eðlilegt að leita til Kínverja um hjálp þegar kemur að fjármögnun björgunarsjóðs Evrópusambandsins. Viðskipti erlent 31.10.2011 09:04
Skipað að hefja flugferðir á ný Óháður dómstóll í Ástralíu kvað í gær upp þann úrskurð að ástralska flugfélagið Qantas verði að hefja flug að nýju. Stjórn flugfélagsins ákvað á laugardag að hætta öllu flugi vegna deilna við verkalýðsfélög, sem höfðu ekki viljað semja við félagið eftir að starfsemin var skorin niður í sparnaðarskyni. Úrskurðurinn felur í sér að deiluaðilum er skipað að hefja viðræður, sem í sjálfu sér er sigur fyrir flugfélagið.Alls urðu 70 þúsund manns í 22 löndum fyrir óþægindum vegna flugstöðvunarinnar. Viðskipti erlent 31.10.2011 06:00
Flóðin hafa veruleg áhrif á efnahag Tælands Flóðin í Tælandi, sem hafa nú þegar lagt þriðjung landsins undir vatn, eru farin að hafa veruleg áhrif á efnahag landsins. Viðskipti erlent 31.10.2011 00:23
Kínverjar ekki tilbúnir að samþykkja þátttöku Kínverjar voru ekki tilbúnir til þess að taka þátt í fjármögnun á sérstökum björgunarsjóði Evrópusambandsins (ESB) að sinni, a.m.k. ekki fyrr en nákvæmari upplýsingar liggja fyrir um hvernig hann verður byggður og síðan notaður. Viðskipti erlent 30.10.2011 20:42
Seðlabankastjóri Evrópu hættir á morgun Jean-Claude Trichet, fráfarandi seðlabankastjóri Seðlabanka Evrópu, segir að efnahagskreppan á evrusvæðinu sé ekki á enda. Í dag hvatti hann leiðtoga ríkja innan Evrópusambandsins til þess að hrinda strax í framkvæmd þær aðgerðir sem samþykktar voru síðastliðinn miðvikudag. Viðskipti erlent 30.10.2011 17:37
Kínverjar taka yfir Saab Forsvarsmenn sænska bíla- og vélaframleiðandans Saab samþykktu í dag að selja fyrirtækið til tveggja kínverskra fyrirtækja fyrir 100 milljónir evra. Fyrirtækin heita Pang Da og Youngman. Viðskipti erlent 30.10.2011 00:13
Þjóðverjar 55 milljörðum evrum ríkari Þýski ríkissjóðurinn er 55 milljörðum evrum ríkari en talið var. Þetta uppgötvaðist þegar að í ljós kom að villa var gerð í bókhaldi Hypo Real Estate bankans sem var þjóðnýttur árið 2009. Þjóðverjar búast nú við því að skuldir ríkissjóðs verði 81,1% af landsframleiðslu í ár, sem er um 2,6% minna en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Bókhaldsmistökin voru uppgötvuð fyrr í þessum mánuði en tilkynnt á föstudaginn. Viðskipti erlent 29.10.2011 10:58
Atvinnulausir á Spáni aldrei verið fleiri Tæplega fimm milljónir Spánverja eru nú atvinnulausir, eða 21,5 prósent af vinnubærum mönnum. Ástandið hefur aldrei verið verra í landinu en tölur fyrir þriðja ársfjórðung voru birtar þar í landi í dag. Efnahagslífið á Spáni hefur verið á brauðfótum undanfarin misseri eins og víðar í Evrópu en atvinnuleysi er hvergi meira í álfunni en á Spáni. Viðskipti erlent 28.10.2011 13:29
Norski olíusjóðurinn tapaði 5.900 milljörðum Norski olíusjóðurinn tapaði 284 milljörðum norskra króna eða rúmum 5.900 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Þetta er næstmesta tapið á einum ársfjórðungi í sögu sjóðsins. Viðskipti erlent 28.10.2011 10:44
Veisla á hlutabréfamörkuðum heimsins Mikil veisla hefur verið í gangi á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í gærkvöldi og á Asíu mörkuðum í nótt. Ástæðan er samkomulag leiðtoga Evrópusabandsins um frekari aðgerðir gegn skuldakreppunni. Viðskipti erlent 28.10.2011 07:23
Verulegar hækkanir í kauphöllum Evrópu Veruleg hækkun hefur orðið í kauphöllum Evrópu frá því að þær opnuðu í morgun. Ástæðan er greinileg ánægja með það samkomulag sem leiðtogar Evrópusambandins náðu í nótt um frekari aðgerðir gegn skuldakreppunni. Viðskipti erlent 27.10.2011 08:51
Björgunarsjóður ESB stækkaður í 1.000 milljarða evra Leiðtogar Evrópusambandsins komust að samkomulagi um aðgerðir gegn skuldakreppunni á fundi sínum í Brussel. Fundinum lauk ekki fyrr en í nótt. Viðskipti erlent 27.10.2011 07:28
Útlínur að samkomulagi sagðar liggja fyrir Þjóðarleiðtogar Evrópuríkja hafa komið sér saman um útlínur að samkomulagi um hvernig bregðast skuli við miklum þjóðarskuldum og slæmri stöðu banka í Evrópu. Frá þessu greindi breska ríkisútvarpið BBC í kvöld. Efnisatriði þess liggja þó ekki fyrir nema að litlu leyti. Fundað hefur verið í Brussell í dag með von um að ná samkomulagi um helstu aðgerðir sem grípa þarf til. Viðskipti erlent 26.10.2011 23:19
Stjórnandi hjá Goldman Sachs í gæsluvarðhald Fyrrverandi stjórnandi hjá Goldman Sachs hefur verið hnepptur í gæsluvarðhald. Hann er sakaður um að hafa gefið vogunarsjóð innherjaupplýsingar. Maðurinn, sem heitir Rajat Gupta, er sakaður um að hafa veitt Raj Rajaratnam, stjórnanda vogunarsjóðsins, upplýsingarnar. Verjandi Gupta neitar fullyrðingum þess efnis að Gupta hafi gerst brotlegur við lög. Viðskipti erlent 26.10.2011 16:23
Krugman segir hagfræðiþekkingu Íslendinga góða Paul Krugman, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði og heimsfrægur samfélagsrýnir, segir mikla hagfræðiþekkingu hjá Íslendingum miðað það sem hann hafi lesið. Það sé áhugavert í ljósi þess að landið er álíka fjölmennt og meðal bær í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram á bloggi Krugmans á vefsíðu The New York Times. Viðskipti erlent 26.10.2011 14:22
Þýska þingið samþykkti björgunaraðgerðir Þýska þingið hefur samþykkt tillögur Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, um aðgerðir vegna kreppunnar á evrusvæðinu. Aðgerðaráætlunin hefur verið lengi í smíðum en allir leiðtogar evruríkjanna hittust á sunnudaginn til þess að móta áætlunina. Áætlunin gengur út á að björgunarsjóður Evrópusambandsins verði stækkaður upp í allt að 1000 milljarða evra og að bankar í Evrópu afskrifi stóran hluta af skuldum gríska ríkisins. Viðskipti erlent 26.10.2011 13:52
Greenspan: ESB „dæmt til þess að falla“ Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir að Evrópusambandið sé „dæmt til þess að falla“ vegna þess að munurinn á innviðum hagkerfanna í Suður- og Norður Evrópu sé einfaldlega of mikill. Þessi orð Greenspan falla í viðtali við CNBC í gær. Viðskipti erlent 26.10.2011 10:30
Móðurfélag Norðuráls tapaði rúmum 750 milljónum Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls, tapaði 6,6 milljónum dollara eða rúmum 750 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi ársins. Þetta er töluvert betri niðurstaða en á sama tímabili í fyrra þegar tapið nam tæpum 17 milljónum dollara. Viðskipti erlent 26.10.2011 10:11
Dreamliner þotan loksins í áætlunarflug Dreamliner þota Boeing verksmiðjanna er loksins komin á loft í júmfrúrferð sína í áætlunarflugi þremur árum á eftir áætlun. Viðskipti erlent 26.10.2011 07:40
King segir björgunarpakkann ekki duga Björgunarpakkinn sem leiðtogar evruríkjanna eru nú með í smíðum til að koma í veg fyrir efnahagshrun á evrusvæðinu er ekki varanleg lausn. Þetta sagði Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, á fundi með þingnefnd breska þingsins í morgun. King sagði að enn þyrfti að leysa undirliggjandi vanda evruríkjanna. Viðskipti erlent 25.10.2011 20:00
Grunur um innherjasvik Fjármálaeftirlitið á Wall Street í Bandaríkjunum hefur til skoðunar viðskipti vogunarsjóðsins SAC Capitol Advisors vegna gruns um innherjasvik. Frá þessu er greint á vefsíðu Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 25.10.2011 10:44
Verð á gulli og olíu hækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á gulli og olíu fer nú aftur hækkandi. Ástæðan er að fjárfestar óttast að boðaðar aðgerðir leiðtoga evrulandanna gegn skuldakreppunni verði ekki nægilega öflugar. Viðskipti erlent 25.10.2011 09:51
UBS hagnast þrátt fyrir miðlaraskandal Svissneski bankinn UBS hagnaðist um einn milljarð dollara, rúmlega 115 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi samkvæmt tilkynningu bankans til kauphallarinnar í New York. Viðskipti erlent 25.10.2011 08:48