Viðskipti erlent Lindsay Lohan verður fylgdarkona Lugner í ár Viðskipti erlent 7.2.2010 09:16
274 275 276 277 278 279 280 281 282 … 334 ›
Actavis og Teva leggja fram tilboð í Ratiopharm Actavis og Teva eru bæði búin að leggja fram tilboð í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Talið er að bandaríski lyfjarisinn Pfizer muni einnig leggja fram tilboð fyrir lok mánaðarins en áður hafði komið fram að Pfizer væri hætt við að reyna að kaupa Ratiopharm. Viðskipti erlent 7.2.2010 08:33
Google fyrirtækið hótar að hætta starfsemi í Kína Google fyrirtækið hefur hótað því að hætta allri starfsemi í Kína vegna þess að fyrirtækið hefur orðið fyrir árásum af hálfu kínverskra tölvuhakkara. Viðskipti erlent 5.2.2010 21:00
Spáir hálfri milljón atvinnulausra í Danmörku í ár Helge J. Pedersen aðalhagfræðingur Nordea bankans spáir því að hálf milljón Dana muni verða atvinnulausir á þessu ári, að hluta eða öllu leyti. Þetta byggir Pedersen á nýjum tölum frá hagstofu Danmerkur. Viðskipti erlent 5.2.2010 14:34
Kanadískt rækjustríð eykur landanir í Reykjavík Stjórnvöld í Kanada eru nú komin í stríð við grænlenska og færeyska rækjusjómenn. Í næstu viku munu stjórnvöld loka höfnum á austurströnd Kanada fyrir rækjuskipum þessara þjóða. Það hefur aftur þær afleiðingar að landanir færeyska rækjuskipa flytjast að hluta til Reykjavíkur. Viðskipti erlent 5.2.2010 10:45
Óttinn er kominn aftur, rautt í öllum kauphöllum Hinn þekkti fjárfestir Bill Gross segir að óttinn sé kominn aftur á fjármálamarkaði heimsins. Þetta sjáist best á því að rauðar tölur eru nú í nær öllum kauphöllum heimsins. Markaðurinn á Wall Street endaði í mínus í gærkvöldi, Asíumarkaðirnir upplifðu stærsta fall sitt á síðustu mánuðum í nótt og vísitölur lækka í öllum kauphöllum Evrópu í dag. Viðskipti erlent 5.2.2010 10:06
Hollywood draumum Kaupþings og Candy-bræðra lokið Candy-bræðurnir bresku og Richard Caring hafa nú endanlega tapað Lotus-verkefni sínu í Beverly Hills. Kaupþing tekur mikinn skell vegna þessa en bankinn fjármagnaði þá bræður. Verkið samanstendur af 235 lúxusíbúðum auk verslana og veitingahúsa. Viðskipti erlent 5.2.2010 08:05
FIH bankinn hagnaðist um 280 milljónir í fyrra FIH bankinn danski skilaði hagnaði upp á um 280 milljónir kr. í fyrra eftir skatta. Uppgjör ársins veldur vonbrigðum meðal danskra fjárfesta að því er segir í frétt um málið á börsen,dk. Viðskipti erlent 4.2.2010 18:26
Óbreyttir stýrivextir hjá ECB og Englandsbanka Bæði Seðlabanki Evrópu (ECB) og Englandsbanki héldu stýrivöxtum sínum óbreyttum í dag. Vextir ECB verða því áfram 1% og vextir Englandsbanka haldast áfram í hinu sögulega lágmarki 0,5%. Viðskipti erlent 4.2.2010 12:54
Gott uppgjör hjá Deutsche Bank Deutsche Bank skilaði góðu uppgjöri á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Hagnaður eftir skatta nam 1.3 milljarði evra eða um 230 milljörðum kr. Til samanburðar má nefna að Deutsche Bank skilaði tapi upp á 4,8 milljarða evra á sama tímbili árið 2008. Viðskipti erlent 4.2.2010 09:48
Uppgjör Danske Bank veldur vonbrigðum Danske Bank náði hagnaði upp á 1,7 milljarða danskra kr. eða um 40 milljörðum kr. eftir skatta í fyrra. Uppgjörið fyrir árið sem bankinn birti í morgun veldur vonbrigðum þótt að hagnaður bankans aukist nokkuð frá hryllingsárinu 2008 þegar hann nam einum milljarði danskra kr. Viðskipti erlent 4.2.2010 08:23
Hver starfsmaður hjá Skagen fær 21 milljón í bónus Hver einasti starfsmaður norska félagsins Skagen AS mun fá minnst eina milljón norskra kr. eða ríflega 21 milljón kr. í bónus fyrir síðasta ár. Skagen AS rekur þrjá hlutabréfa og verðbréfasjóði og gekk þeim það vel að hagnaður eftir skatta á síðasta ári nam 582 milljónum norskra kr. eða um 12 milljörðum kr. Viðskipti erlent 3.2.2010 15:48
Seðlabanki Noregs heldur óbreyttum vöxtum Seðlabanki Noregs, Norges Bank, hélt stýrvöxtum sínum óbreyttum í 1,75% á vaxtaákvörðunardegi í dag. Þetta er í takt við væntingar sérfræðinga. Viðskipti erlent 3.2.2010 13:50
Rússar slógust um Picasso málverk á uppboði Rússneskir kaupendur slógust um málverk eftir Picasso á uppboði hjá Christie´s í London í vikunni. Hin ákafa barátta um verkið, sem er Tete de Femme frá árinu 1963, olli því að það var slegið á 8,1 milljón punda eða nokkuð yfir 1,6 milljarða kr. Viðskipti erlent 3.2.2010 13:30
Brynvörðum peningaflutningabíl breytt í lúxuslimmósínu Neyðin kennir naktri konu að spinna segir máltækið og það á vel við um eigendur fyrirtækis í Dallas Texas sem sérhæfir sig í flutningum á peningum milli staða í brynvörðum bílum. Viðskiptin hafa dalað mikið í kreppunni og því greip fyrirtækið til þess ráð að breyta bílum sínum í lúxuslimmósínur fyrir hina frægu og ríku. Viðskipti erlent 3.2.2010 10:58
Skuldabréfaútgáfa ManU orðin verulegt klúður Þeir fjárfestar sem tóku þátt í 500 milljóna punda skuldabréfaútgáfu enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United (ManU) sitja nú eftir með sárt ennið. Verð á þessum skuldabréfum hefur hríðfallið á þeim tveimur vikum sem liðnar eru frá útgáfunni. Viðskipti erlent 3.2.2010 08:28
Þráðlaust rafmagn og þrívíddarsjónvarp „Sýningin var vel heppnuð og er orðin nokkuð stór, en þarna voru um 120 þúsund manns,“ segir Björn Gunnar Birgisson, yfirvörustjóri PC tölva og íhluta hjá Nýherja. Hann sótti heim CES-raftækjasýninguna sem haldin er í Las Vegas í Bandaríkjunum í janúar ár hvert. Þar keppast framleiðendur um að kynna „tækni framtíðarinnar“. Viðskipti erlent 3.2.2010 03:45
Aftur til framtíðar í efnahagsmálum Helstu hugmyndir Baracks Obama Bandaríkjaforseta um yfirhalningu bankakerfisins eru sóttar í smiðju Paul Volcker, fyrrverandi seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Volcker var tvímælalaust farsælasti seðlabankastjórinn á 20. öld og meðal þeirra fyrstu til að vara við ágöllum þess sem við kölluðum „hið nýja og góða fjármálakerfi“. Viðskipti erlent 3.2.2010 03:00
Toyota reiknar með samdrætti Samdráttur í sölu vegna innköllunar á bílum vegna galla í bensíngjöf nýrra Toyota-bíla kann að verða meiri en vegna fyrri innkallana, að sögn framkvæmdastjóra Toyota Motor Corp., Shinichi Sasaki. Hann segir þetta vera vegna þess að gallinn sé alvarlegri en áður hafi þekkst hjá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 3.2.2010 00:01
Reuters: Actavis í kjörstöðu að eignast Ratiopharm Í nýrri frétt á Reuters kemur fram að Actavis sé nú komið í kjörstöðu til að eignast þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Bandaríski lyfjarisinn Pfizer sé dottinn út úr kaupferlinu og Teva frá Ísrael ætli sér í mikinn niðurskurð á starfsfólki í Þýskalandi sem hugnist ekki eigendum Ratiopharm. Viðskipti erlent 2.2.2010 18:22
Sænskum bönkum blæðir út í Eystrasaltslöndunum Samkvæmt útreikningum Riksbanken það er sænska seðlabankans munu sænsku bankarnir SEB, Swedbank og Nordea tapa 120 milljörðum sænskra kr. eða tæplega 2.200 milljörðum kr. í Eystrasaltslöndunum samanlagt árin 2009 og 2010. Viðskipti erlent 2.2.2010 10:34
Verðlækkanir á hrásykri framundan, sykurbólunni lokið Verðlækkanir á hrásykri eru framundan og telja sérfræðingar að sykurbólunni sem verið hefur á markaðinum allt síðasta ár sé lokið. Verð á hrásykri náði rúmum 30 sentum á pundið í síðasta mánuði og var það hæsta verð sem fengist hefur síðan í janúar 1981 eða fyrir 29 árum. Viðskipti erlent 2.2.2010 09:23
Þýskaland og Sviss á leið í skattastríð Þýsk stjórnvöld hafa lýst yfir áhuga sínum á því að taka tilboði tölvusérfræðings sem hefur boðið þeim lista með nöfnun 1.500 Þjóðverja sem eiga leynilega reikninga í svissneskum bönkum. Þetta hefur vakið nokkuð hörð viðbrögð af hálfu svissneskra stjórnvalda. Viðskipti erlent 2.2.2010 08:34
IKEA í stórsókn á danska markaðinum Sænski húsgagnarisinn IKEA er í stórsókn í Danmörku og hefur náð til sín fjölda viðskiptavina frá samkeppnisaðilum sínum á danska markaðinum. IKEA hyggur á frekari vöxt á þessum markaði og ætlar að nýta sér kreppuna til að stinga lengra af frá keppinautum sínum. Viðskipti erlent 2.2.2010 08:15
Ráðherra varar við falli UBS bankans í Sviss Eveline Widmer-Schlumpf dómsmálaráðherra Sviss hefur varað við því að UBS bankinn gæti fallið. Framtíð bankans mun ráðast af viðkvæmum samningaviðræðum sem eru í gangi í Bandaríkjunum í tengslum við umfangsmikla rannsókn á skattsvikum þar í landi. Viðskipti erlent 1.2.2010 14:47
Dr. Doom óttast fasteignabólu í Noregi Hagfræðiprófessorinn Nouriel Roubini, betur þekktur sem dr. Doom, óttast að fasteignabóla sé í uppsiglingu í Noregi. Þetta kom fram í ræð sem hann hélt á ráðstefnu í Osló en þangað flaug prófessorinn beint frá Davos í Sviss. Viðskipti erlent 1.2.2010 13:46
Fjármagn flæðir út úr Evrópu á methraða Fjárfestar eru að draga fé sitt út úr Evrópu á methraða á sama tíma og seðlabankar draga úr evrukaupum sínum. Þetta þýðir að evran sem gjalderyisforðamynt er langt frá því að fella dollarann úr sessi. Viðskipti erlent 1.2.2010 10:37
Álverð fellur á heimsmarkaði eins og aðrar hrávörur Álverðið á markaðinum í London hefur fallið töluvert undanfarnar tvær vikur og er komið niður í 2.095 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Hæst fór verðið í rúma 2.300 dollara fyrrrihluta janúarmánaðar. Viðskipti erlent 1.2.2010 09:50
Sænska öryggislögreglan og FBI stoppuðu söluna á Saab Í ljós hefur komið að sænska öryggislögereglan og bandaríska alríkislögreglan FBI stoppuðu söluna á Saab í desember s.l. Ástæðan voru tengsl Antonovgroup við skipulagða glæpastarfsemi í Rússlandi. Salan fór síðan fram í þessum mánuði eftir að Antonovgroup var komin úr kaupendahópnum. Viðskipti erlent 1.2.2010 08:31
Stjórnendur Toyota fara í sérstakt fjölmiðlaátak Stjórnendur Toyota framleiðandans eru að fara af stað með sérstakt fjölmiðlaátak í Bandaríkjunum til þess að bæta ímynd bílanna. Viðskipti erlent 1.2.2010 08:04