Viðskipti erlent

Landsbankasvindlið á Spáni teygir sig til Cote d´Azur
Landsbankasvindlið á Spáni teygir nú anga sína yfir Cote d´Azur leikvöll þeirra frægu og ríku í suðurhluta Frakklands. Fjallar er um málið á vefsíðunni euroweekly.com.

Bréf í Asíu lækka
Hlutabréf á Asíumörkuðum féllu í verði í morgun, fjórða daginn í röð, og stafar lækkunin af efasemdum fjárfesta um að ný björgunaráætlun Bandaríkjastjórnar nægi til að draga þarlent efnahagslíf á flot aftur.

Líklegt að Englandsbanki færi vexti undir 1 prósent
Líklegt þykir að Englandsbanki muni lækka stýrivexti niður fyrir eitt prósent í viðleitni sinni til að draga úr áhrifum efnahagskreppunnar þar í landi.

Kolsvört hagspá ASÍ
Framundan er mesta samdráttarskeið sem íslenskt efnahaglíf hefur gengið í gegnum á síðari árum. Fyrir höndum eru tvö erfið ár en það tekur að rofa til að nýju á árinu 2011.

Starfsmenn Baugs í London sendir heim með vikulaun í vasanum
Megninu af starfsmönnum Baugs á skrifstofu félagsins í London var sagt upp í gærdag og þeir sendir heim með vikulaun í vasanum. PricewaterhouseCoopers hefur tekið við lyklunum að skrifstofunni og mun reka Baug með á greiðslustöðvuninni stendur.

Björgólfur Thor meðal fórnarlamba fjársvikara í New York
Samkvæmt frétt á Bloomberg fréttaveitunni er Novator, í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, meðal fórnarlamba fjársvikarans Marc Dreier í New York.

Carnegie bankinn í Svíþjóð seldur fyrir 27 milljarða kr.
Tveir fjárfestingarsjóðir, Altor og Bure Equity, hafa fest kaup á Carnegie bankanum í Svíþjóð. Kaupverðið er 2 milljarðar sænskra kr. eða rúmlega 27 milljarðar kr..

Skotlandsbanki undirbýr 2.300 uppsagnir
Skotlandsbanki undirbýr nú uppsagnir 2.300 starfsmanna um allt Bretland, en sá fjöldi nemur um tveimur prósentum af starfsfólki bankans.

Hlutabréf taka dýfu í kjölfar orða Geithners
Töluverð lækkun varð á asískum hlutabréfamörkuðum í morgun, alls staðar nema í Japan þar sem kauphallir eru lokaðar vegna almenns frídags.

Aukin hætta á greiðslufalli
Greiðslufallsáhætta Moody's á heimsvísu var 4,8 prósent í janúar, en var 1,1 prósent fyrir ári. Spá Moody's gerir ráð fyrir að greiðslufallsáhættan hækki hratt og verði 16,4 prósent í nóvember en lækki svo aftur aðeins í desember.

Franska forsetafrúin selur höll sína á Ítalíu
Arrivederci Ítalía og bonjour Frakkland. Franska forsetafrúin Carla Bruni hefur selt höll sína á Ítalíu til arabísk sheiks fyrir tæpa 1,4 milljarða kr.. Þar með hefur Bruni ákveðið að kveðja heimaland sitt en hún ólst upp í þessari höll.

Tvö af dótturfélögum JJB Sports komin í greiðslustöðvun
Tvö af dótturfélögum íþróttavöruverslunarkeðjunnar JJB Sports í Bretlandi eru komin í greiðslustöðvun. Gamla Kaupþing er nú stærsti hluthafinn í JJB Sports eftir að hafa gert veðkall í sameiginlegum hlut Exista og Chris Ronnie fyrrum forstjóra félagsins.

Nær öllum sagt upp á skrifstofu Baugs í London
Nær öllum starfsmönnum á skrifstofu Baugs í London verður sagt upp í dag. Aðeins Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður, Gunnar Sigurðsson forstjóri og Andrew Lobb forstöðumaður lagadeildar félagsins munu starfa þar áfram.

Breskir bankastjórar grillaðir hjá þingnefnd um bankahrunið
Fyrrverandi framkvæmdastjórar og stjórnarformenn tveggja stærstu banka Bretlandseyja báðust í dag afsökunar á framferði sínu fyrir bankahrun. Þeir báru vitni fyrir breskri þingnefnd þar sem hart var gengið á þá.

Fjárfestapar gerir tilboð í Carnegie bankann í Svíþjóð
Meðal áhugasamra kaupenda Carnegie bankans í Svíþjóð eru fjárfestaparið Patrik Enblad og Anders Böös að því er heimildir Dagens Industri herma. Þeir hafa áður sýnt Carnegie áhuga en eru nú með stuðning þriðja stærsta banka Sviss á bakvið sig.

GGE bætir við hlut sinn í Envent Holdings á Filippseyjum
Geysir Green Energy (GGE) mun auka hlut sinn í orkufyrirtækinu Envent Holdings á Filippseyjum úr 50% og í 80%. Jafnframt mun GGE taka við stjórn Envent.

Breyta verður bankalöggjöf ESB eftir íslenska bankahrunið
Breska fjármálaráðuneytið (FSA) segir að hrun íslensku bankanna hafi leitt í ljós að núverandi bankalöggjöf Evrópusambandsins sé ekki á vetur setjandi.

Century Aluminium lokar álveri í Bandaríkjunum
Century Aluminium hefur ákveðið að loka einu af álverum sínum í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum. Century er móðurfélag Norðuráls á Grundartanga og skráð í kauphöllinni hér á landi.

Lækkun á bréfum í Asíu
Asísk hlutabréf féllu í verði í morgun og er talið að óvissa um 800 milljarða aukabjörgunarpakka bandaríska þingsins valdi því að fjárfestar hafi stigið varlega til jarðar undanfarna daga.

Rússneskir bankar leita á náðir ríkisstjórnarinnar
Rússneskir bankar hafa nú leitað til ríkisstjórnar landsins og farið þess á leit að hún komi að samningaviðræðum þeirra við erlenda lánardrottna um endurfjármögnun skulda sem nema 400 milljörðum dollara og eiga að vera uppgreiddar innan fjögurra ára.

Nissan segir upp 20 þúsund manns
Japanski bílaframleiðandinn Nissan hefur tilkynnt um að félagið hyggist segja upp 20 þúsund manns á næsta ári. Gripið er til þessa vegna vernsandi ástands í bílasölu um allan heim en um er að ræða 8,5 prósent af öllum starfsmönnum bílarisans. Forstjóri fyrirtækisins segir að bílaiðnaðurinn um allan heim sé í miklum vandræðum og að Nissan sé engin undantekning í því sambandi.

Kúafretir gætu kostað danska bændur milljónir kr.
Fretir og ropar úr kúm og svínum gætu kostað danska bændur milljónir danskra króna á næstu árum verði tillögur skattanefndar Danmerkur um gjöld fyrir losun á metangasi út í andrúmsloftið að veruleika.

Reiknað með aukinni sölu á frystum fiski í Bretlandi
Reiknað er með að sala á frosnum matvælum í Bretlandi muni nema ríflega 5 milljörðum punda á þessu ári, og mest verði aukningin í sölu á frystum sjávarafurðum.

Nissan segir upp 20 þúsund starfsmönnum
Japanski bílaframleiðandinn Nissan hefur ákveðið að segja upp tuttugu þúsund manns vegna samdráttar í bílasölu. Þetta jafngildir 8,5 prósentum af öllu starfsfólki Nissan.

Kaupandi fundinn að Carnegie bankanum í Svíþjóð
Samkvæmt frétt í Dagens Nyheder er búið að finna kaupenda að Carnegie bankanum sænska og að tilkynnt verði um kaupin seinna í dag. Milestone átti 10% í bankanum þegar sænska ríkið þjóðnýtti hann fyrr í vetur.

Segir Íslendinga vera hina nýju Pólverja
Ásókn Íslendinga í störf í Noregi hefur margfaldast að undanförnu og í frétt um málið í blaðinu Aftenposten eru Íslendingar sagðir vera hinir nýju Pólverjar þar í landi.

Nikkei-vísitalan lækkaði um tæpt prósent
Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan lækkaði um tæpt prósent í morgun en jenið, gjaldmiðill Japans, styrktist hins vegar töluvert og hefur ekki haft jafnsterka stöðu gagnvart bandaríkjadollar í meira en þrjár vikur. Talið er að japanskir útflytjendur kaupi nú jen í miklum mæli til að reyna að styrkja gjaldmiðilinn. Í Hong Kong hækkuðu hlutabréf í viðskiptum dagsins og þokaðist Hang Seng-vísitalan upp á við um tæpt prósent.

Blankir Baugsmenn þurftu að selja þyrlu til forstjóra Iceland
Fjárhagsstaða Baugs var svo bág í lok síðasta árs að félagið neyddist til að selja þyrlu í eigu þess til Malcolm Walker, forstjóra Iceland, fyrir tvær milljónir punda eða um 340 milljónir króna.

Kaupþing ætlar að endurskipuleggja Mosaic
Kaupþing hefur tekið yfir 49% hlut Baugs í tískuvörukeðjunni Mosaic Fashion og hyggst bankinn endurskipuleggja reksturinn að sögn The Sunday Times. Skuldir Baugs við Kaupþing nema 450 milljónum punda eða um 76 milljörðum samkvæmt blaðinu.

Þingnefnd rannsakar innlán sveitarfélaga á reikninga bankanna
Nefnd á vegum breska þingsins rannsakar nú þá ákvörðun margra sveitastjórna í Bretlandi að leggja sparifé inn á reikninga íslensku bankanna, en féð var fryst þegar bankarnir hrundu í október. Richard Kemp borgarfulltrúi í Liverpool borg hefur fullyrt fyrir nefndinni að viðræður við skilanefndir bankanna gæfu ástæðu til þess að vonast til að féð fengist greitt.