Viðskipti innlent

„Make JL-húsið Great Again“
Rekstur er hafinn á enn einum pílustaðnum á höfuðborgarsvæðinu, sem út af fyrir sig væri ekki í frásögur færandi enda spretta þeir upp eins og gorkúlur nú um mundir.

Icelandair Group losar sig við Iceland Travel
Icelandair Group og Nordic Visitor undirrituðu í dag samning um kaup þess síðarnefnda á 100 prósent hlut Icelandair Group í Iceland Travel.

Lofa djammþyrstum áður óþekktu skemmtanahaldi
Hjónin Jón Bjarni Steinsson og Katrín Ólafsson hafa yfirtekið reksturinn á skemmtistaðnum Pablo Discobar við Veltusund og lofa því að bjóða djammþyrstum uppá áður óþekkt skemmtanahald.

Eimskip falast eftir sátt vegna brota á samkeppnislögum
Eimskip hefur leitað til Samkeppniseftirlitsins og óskað eftir formlegum viðræðum um hvort unnt sé að ljúka rannsókn eftirlitsins á samkeppnisbrotum fyrirtækisins með sátt.

Veitingamenn ósáttir við valdmannslega heimsókn skattstjóra
Útsendarar Ríkisskattstjóra mættu á nokkra vel valda veitingastaði í miðborginni í gærkvöldi og kröfðust þess að fá að sjá posastrimla.

Bein útsending: Umbreyting á þjónustu í þágu borgarbúa
Græna plan Reykjavíkurborgar kveður á um að hraða skuli stafrænni umbreytingu með það að markmiði að bæta þjónustu borgarinnar. Ráðstefna Reykjavíkurborgar, Umbreyting á þjónustu í þágu borgarbúa, fer fram í dag milli klukkan níu og tólf og verður hægt að fylgjast með í spilara að neðan.

Ríkið gerir sátt við fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg
Íslenska ríkið hefur gert dómsátt við Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg, og hefur mál hans verið fellt niður hjá Mannréttindadómstól Evrópu vegna þessa. Samkvæmt sáttinni fær hann 15 þúsund evrur í bætur, um 2,2 milljónir króna.

Spá 4,3 prósenta verðbólgu í júní og minni útsölum
Verðbólga lækkar úr 4,4% í 4,3% í júní ef marka má nýja verðbólguspá Landsbankans. Þá er gert ráð fyrir minni útsöluáhrifum í sumar en síðustu ár.

Ráðinn forstöðumaður samgangna hjá Betri samgöngum
Þorsteinn R. Hermannsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samgangna hjá Betri samgöngum ohf. til eins árs frá 1. september.

Sístækkandi hlutur streymis bæði jákvæður og neikvæður
Heildarverðmæti tónlistarsölu á Íslandi í fyrra var það mesta frá upphafi skráningar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Félags hljómplötuframleiðenda.

Íbúfen og Panodil í verslanir á Flúðum og Fáskrúðsfirði
Samkaup hefur hafið sölu á lausasölulyfjum í þremur verslunum félagsins. Verslanirnar sem um ræðir eru Krambúðin á Flúðum og Laugarvatni, og Kjörbúðin á Fáskrúðsfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkaupum.

„Ekki kærkomin hvíld, en mætum nú öflugri til leiks“
Friðrik Rafnsson var kjörinn nýr formaður Leiðsagnar - Stéttarfélags leiðsögumanna á aðalfundi í gær. Friðrik hefur verið ritari félagsins síðasta árið og tekur við starfinu af Pétri Gauta Valgeirssyni.

ÁTVR kvartar formlega undan vefverslunum
ÁTVR hefur tilkynnt sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og á Vesturlandi um meint brot Bjórlands, Brugghússins Steðja og Sante ehf. Áfengisverslunin telur þessa aðila hafa gerst brotlega við áfengislög.

Vivaldi með nýjungar til að forðast gagnasöfnun tæknirisa
Í fréttatilkynningu frá Vivaldi segir að með nýrri útgáfu vafrans, Vivaldi 4.0 sem kynnt er til sögunnar í dag, bjóðist notendum enn fleiri þjónustur en áður sem gerir fólki kleift að forðast upplýsingaöflun gagnaheildsala og tæknirisa.

Streymið allsráðandi á íslenskum tónlistarmarkaði
Um 91 prósent af þeim verðmætum sem skapast vegna einkaneyslu á hljóðritaðri tónlist koma frá streymi. Heildsala tónlistar hérlendis nam rúmum milljarði króna árið 2020 en um er að ræða stærsta árið frá upphafi að nafnvirði.

Systurnar loks lausar allra mála í Sjólaskipamálinu
Systur sem kenndar hafa verið við útgerðina Sjólaskip voru á dögunum sýknaðar af ákæru um skattsvik. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. maí en hefur enn ekki verið birtur á vef héraðsdóms. Ríkissaksóknari ætlar ekki að áfrýja dómnum. Málaferlin hafa staðið yfir í áratug.

Ríkissaksóknari áfrýjar máli Sigur Rósar: „Mér þykir þetta orðið skammarlegt“
Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi héraðsdóms í máli fjögurra liðsmanna hljómsveitarinnar Sigur Rósar. Liðsmönnum sveitarinnar hefur verið birt áfrýjunarstefna.

Bein útsending: Verðlaunað fyrir samfélagslega ábyrgð fyrirtækja
Festa, Stjórnvísi og Viðskiptaráð Íslands veita viðurkenningu fyrir Samfélagsskýrslu ársins 2021. Beint streymi verður frá athöfninni og umræðum hér á Vísi.

Mun stýra mannauðsmálum hjá Norðuráli
Guðný Björg Hauksdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri mannauðssviðs Norðuráls.

Kristín tekur við af Signýju sem fjármálastjóri Sýnar
Kristín Friðgeirsdóttir hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Sýnar hf. Hún tekur við af Signýju Magnúsdóttur sem snýr aftur til Deloitte og bætist í hóp hluthafa þess félags.

Fjöldi farþega milli landa tvöfaldast milli mánaða
Fjöldi farþega í millilandaflugi hjá Icelandair í maí var rúmlega tvöfalt fleiri en í síðasta mánuði. Félagið hefur aukið flugframboð sitt að undanförnu í takt við aukna eftirspurn eftir flugi, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu sem vísar til flutningatalna sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.

Keypti skuldir þrotabúsins og sækir skuldlaus á miðin
Útgerðarmaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi segist hafa ákveðið að gera upp við alla kröfuhafa í þrotabú útgerðarinnar Sælindar ehf í topp í stað þess að bíða eftir niðurstöðu í dómsmáli. Guðmundur Gísli var í nóvember 2019 dæmdur í héraðsdómi til að greiða þrotabúinu fimmtíu milljónir króna auk vaxta vegna gjafagjörnings.

Ráðin nýr fjármálastjóri Orkusölunnar
Elísabet Ýr Sveinsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Orkusölunnar.

Hlutafjárútboð hafið og markaðsvirði Íslandsbanka áætlað 150 milljarðar króna
Bankasýsla ríkisins, fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands, og Íslandsbanki hf., hafa birt lýsingu og tilkynnt stærð fyrirhugaðs hlutafjárútboðs í bankanum og leiðbeinandi verðbil þess. Selja á rúmlega 636 milljón hluti en útboðshlutirnir, og valréttarhlutirnir, nema að hámarki 35 prósentum af heildarhlutafé bankans.

Skoða að færa KFC nær Akureyri
Skyndibitakeðjan KFC er nú í viðræðum við fasteignafélagið Klettás um mögulega opnun nýs veitingastaðar við Norðurtorg á Akureyri. Viðræðurnar eru á byrjunarstigi en stjórnendur KFC hafa reynt að nema land fyrir norðan í tuttugu ár.

Útlit fyrir líflegt ferðasumar
Um níu af hverjum tíu landsmönnum ætla í ferðalag innanlands í sumar þar sem gist er eina nótt eða lengur og ætlar tæplega helmingur að gista á hóteli. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar á vegum Ferðamálastofu.

Kilroy lýkur 1,4 milljarða endurfjármögnun og sækir á nýja markaði
Ferðaskrifstofan Kilroy International A/S hefur lokið við endurfjármögnun sem nemur 1.400 milljónum króna. Stendur til að nýta fjármagnið til að styrkja rekstur fyrirtækisins og sækja hugsanlega inn á nýja markaði þegar ferðamarkaðir halda áfram að opnast.

„Þetta hefur farið miklu betur en við reiknuðum með“
Tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna hækkaði um 5,7% í fyrra frá árinu 2019 þrátt fyrir mikinn efnahagssamdrátt og stóraukið atvinnuleysi. Er það sama aukning og sást milli áranna 2018 og 2019. Hagfræðiprófessor segir að staðan hafi reynst mun betri en svartar spár gerðu ráð fyrir.

Stærð ferðaþjónustunnar ástæða lengra bataferlis
Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands gerir ráð fyrir því að hlutur ferðaþjónustunnar í hagkerfi landsins sé helsta ástæða þess að OECD spái Íslandi svo hægum bata úr efnahagskreppu faraldursins.

Nadine fer til Play
Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni hefur ráðið sig til flugfélagsins Play sem samskiptastjóri fyrirtækisins. Hún hættir störfum á fréttastofunni í sumar.