Viðskipti innlent

Ásdís í starf skjalastjóra Póstsins
Ásdís Káradóttir hefur verið ráðin í starf skjalastjóra hjá Póstinum.

Segir rammaáætlun í tómri þvælu og óheimilt að fjalla um vindorku
Aðilar sem áforma vindmyllur við Búðardal telja að vindorka falli ekki undir rammaáætlun og segja verkefnisstjórn óheimilt að fjalla um vind sem orkukost. Ferlið sé komið í tóma þvælu, valdi miklum töfum og geti skapað ríkinu bótaskyldu.

Árni Magnússon nýr forstjóri ÍSOR
Árni Magnússon, fyrrverandi Alþingismaður og ráðherra, hefur verið ráðinn sem fortjóri Íslenskra orkurannsókna, ÍSOR.

Hlutafjárútboð Icelandair samþykkt samhljóða af hluthöfum
Hluthafar Icelandair samþykktu á hluthafafundi nú rétt í þessu að heimila stjórn félagsins að fara í hlutafjárútboð í lok júní.

Flugmenn samþykktu kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta
Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna samþykktu kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan fjögur í dag.

Hluthafafundur Icelandair hafinn
Hluthafafundur Icelandair hófst á Hilton Nordica-hótelinu núna upp úr klukkan 16.

Bein útsending: Hack the Crisis Iceland
Almenningur og frumkvöðlar taka höndum saman um að finna lausnir á áskorunum heilbrigðiskerfisins tengdum COVID-19 á „Hack the crisis Iceland“ hakkaþoninu dagana 22.-24 maí næstkomandi.

Samstaða í hópnum og fundi slitið með dynjandi lófaklappi
Þriðji fundur flugfreyja þar sem samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands fer yfir stöðu mála og svarar spurningum félagsmanna stendur nú yfir á Hilton hóteli.

Segir flugliða Icelandair vinna 14 prósent minna en keppinautarnir
Framkvæmdastjóri mannauðs hjá Icelandair segir að flugfreyjur og flugþjónar hafi verið að fljúga 14 prósent færri flugtíma en hjá sambærilegum félögum í Evrópu. Í lokatilboði félagsins hafi falist bestu mögulegu kjör.

Ræða tilboð sitt en ekki Icelandair
Samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands hefur ekki í hyggju að kynna „lokatilboð“ Icelandair til félagsins fyrir félagsmönnum sínum. Á fundum flugfreyja í dag mun orkan fara í að ræða tilboð flugfreyja til flugfélagsins.

Góð staða Play kom Ragnari Þór á óvart
Um leið og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, biður aðstandendur flugfélagsins Play afsökunar á yfirlýsingum sínum segir hann það hafa komið sér á óvart hversu langt undirbúningur þess er kominn.

Miðnæturopnun hjá World Class í Laugum
Líkamsræktarstöðin World Class ætlar að opna dyrnar að stöðvum sínum á miðnætti á sunnudaginn. Þetta kemur fram í færslu World Class á samfélagsmiðlum.

Ætluðu bara að opna matarvagn en bættu við veitingastað eftir óvænt símtal
Það er ekki á hverjum degi sem nýr veitingastaður er opnaður á Akureyri, hvað þá í miðjum kórónuveirufaraldri, þegar almennt er verið að draga saman seglin á þessum markaði. Það stoppaði þó ekki veitingahjónin Inga Þór Arngrímsson og Nikolina Gracanin í að opna veitingastaðinn Mosa um helgina.

Hlutabæturnar kornið sem fyllti mælinn hjá Grétu
Ósætti með framferði stjórnenda Festar varð til þess að Gréta María Grétarsdóttir sagði óvænt upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri Krónunnar.

Ríkiskaup leitast við að leiðrétta rangfærslur um útboð á kynningarherferð
Ríkiskaup hafa sent frá sér tilkynningu þar sem því er haldið fram að fjölmiðlaumfjöllun um nýafstaðið útboð kynningarherferðarinnar „Ísland – saman í sókn“ feli í sér rangfærslur sem tilefni sé til að leiðrétta.

Opnun landamæra getur tryggt tekjur vegna afbókunarskilmála
Ef svartsýn spá Seðlabankans rætist mun það hafa slæmar afleiðingar fyrir mörg ferðaþjónustufyrirtæki að mati Samtaka ferðaþjónustunnar. Með opnun landamæra er þó líklegra að þeir sem eigi pantaðar ferðir til landsins standi við ferðaplön sín vegna afbókunarskilmála.

Lokatilboðið ekkert lággjaldaflugfélagstilboð að sögn Boga
Forstjóri Icelandair Group segir að lokatilboð félagsins til FFÍ hefði fært flugfélagið nær keppinautum sínum á Norðurlöndum, eins og SAS og Finnair. Starfskjör flugliða væru áfram með þeim bestu á Vesturlöndum.

Ósáttar flugfreyjur láta ekki beygja sig í duftið
Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsir yfir miklum vonbrigðum með það sem félagið lýsir sem einarðri og óbilgjarnri afstöðu Icelandair í árangurslausu samningaviðræðum sem staðið hafa yfir milli aðila síðustu vikur. Samningaviðræðum var slitið í dag og nýr fundur ekki í sjónmáli.

Flugvirkjar gengu að samningnum við Icelandair
Er þarna um að ræða fyrsta kjarasamninginn af þremur sem Icelandair þarf að ljúka fyrir hluthafafund á föstudag.

Viðræðum slitið og Icelandair kannar aðra möguleika
Fundi samninganefnda Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands lauk á þriðja tímanum í dag, án niðurstöðu.

Icelandair segist ekki hafa átt í viðræðum við önnur stéttarfélög
Icelandair segist vera í kjarasamningaviðræðum sínum við Flugfreyjufélag Íslands af heilindum. Ekki hafi komið til tals að semja við annað stéttarfélög um störf flugfreyja og þjóna.

Telja dómara sem dæmdi á skjön við alla hina tengjast bresku auglýsingastofunni
Ekkert hefur þó fengist staðfest í þeim efnum en Vísir hefur sent Ríkiskaupum og Íslandsstofu, sem fara fyrir markaðsátakinu, fyrirspurn vegna málsins.

Bein útsending: Aðgerðir fyrir nýsköpun og vísindi
„Út úr kófinu: vísindi, nýsköpun og áskoranir framtíðarinnar“ er yfirskrift blaðamannafundar sem forsætisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra boða til í dag.

Forsendur Seðlabankans bjartsýnar og þörf á frekari stýrivaxtalækkun
Þrátt fyrir að Samtök iðnaðarins fagni stýrivaxtalækkun morgunsins telja þau þörf á að stærri skref verði stigin í þá átt.

Bein útsending: Peningastefnunefnd ræðir lækkun stýrivaxta
Peningastefnunefnd ræðir stýrivaxtalækkun, 30 daga bundin innlán og Peningamál.

Pipar kærir Ríkiskaup og krefst þess að eigin tillaga verði valin
Auglýsingastofan Pipar/TBWA hefur kært Ríkiskaup vegna þeirrar ákvörðunar að velja tilboð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“.

Stýrivextir lækkaðir um 0,75 prósentur
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1%.

Icelandair sagt íhuga að semja við nýtt stéttarfélag flugfreyja
Komið hefur til tals að setja á laggirnar nýtt stéttarfélag flugfreyja, hvers félagsmenn væru flugfreyjur sem ekki styðja stefnu samninganefndar Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ)

Vigdís talin best 116 umsækjenda
Vigdís Jóhannsdóttir varð hlutskörpust þeirra 116 sem sóttu um stöðu markaðsstjóra Stafræns Íslands.

Kröfu þrotabús WOW air um gjaldþrotaskipti Títan hafnað
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að hafna kröfu þrotabús WOW air um að Títan fjárfestingafélag, sem var móðurfélag flugfélagsins, verði tekið til gjaldþrotaskipta.