Viðskipti

Þórdís ráðin forstöðumaður útvarpsmiðla Sýnar
Þórdís Valsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður útvarpsmiðla Sýnar. Útvarpsstöðvarnar sem Þórdís mun stýra eru Bylgjan, FM957, X977, Gullbylgjan, Léttbylgjan og Íslenska bylgjan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn.

Ráðin nýr verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni
Heiðdís Inga Hilmarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni.

Rándýr samloka á Hvolsvelli
Dýrtíðin á ferðamannaslóð er farin að segja til sín. Teitur Þorkelsson leiðsögumanni brá í brún þegar hann fékk til sín strimilinn eftir að hafa greitt fyrir samloku og komst að því að hún kostaði 1.045 krónur.

ESB sektar Meta um 183 milljarða króna
Evrópusambandið hefur sektað Meta, móðurfélag Facebook, um 1,3 milljarða bandaríkjadala, um 183 milljarða króna, fyrir að hafa sent persónuupplýsingar evrópskra notenda til Bandaríkjanna.

Hagavagninn risinn úr öskunni
Hamborgarastaðurinn Hagavagninn hefur hafið rekstur á ný eftir miklar endurbætur í kjölfar eldsvoða.

Meta í samkeppni við Twitter
Útlit er fyrir að Meta ætli í samkeppni við Twitter. Fregnir hafa borist af því að fyrirtækið muni gefa út í sumar forrit, sem tengist Instagram, þar sem notendur geta varpað fram stuttum textaskilaboðum til fylgjenda sinna og annarra. Til stendur að taka miðilinn í notkun í sumar.

Skammaðist sín fyrir að vera Íslendingur
Hundrað og sjötíu farþegar sátu fastir á flugvellinum í Glasgow í hátt í fjörutíu tíma, á meðan þeir biðu þess að komast um borð í vél til Íslands. Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan tvö í nótt. Ástæða seinkunarinnar var bilun í vélinni. Þegar varahlutur barst reyndist hann síðan ónothæfur. Einn farþega segist hafa skammast sín fyrir að vera Íslendingur.

Enginn atvinnulaus í Skagafirði
Um sextíu fyrirtæki í Skagafirði taka nú þátt í atvinnulífssýningu um helgin á Sauðárkróki en sýningunni er ætlað að varpa ljósi á þann fjölbreytileika sem er í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í Skagafirði. Auk þess að kynna sprota og nýsköpun í atvinnulífi og síðast en ekki síst skapa skemmtilegan viðburð fyrir heimafólk og gesti.

Fyrst og fremst vonbrigði fyrir Norðurland
Bæjarstjóri Akureyrar segir mikil vonbrigði fyrir íbúa Norðurlands að félagið Niceair sé farið í þrot. Of litlum markaði fyrir utanlandsflug frá Akureyri sé ekki um að kenna, heldur öðrum þáttum. Gjafabréf sem fólk á inni hjá félaginu eru líklegast ónýt, að sögn formanns Neytendasamtakanna.

Alltaf kaffi í rúmið og auðvitað í dúndurstuð með S.H.Draumi
Það er í nægu að snúast alla daga hjá Ragnari Þór Ingólfssyni formanni VR, sem er í hljómsveitinni Fjöll og að undirbúa endurkomu hljómsveitarinnar Los, að æfa sig undir átta daga hjólaferð til styrktar Umhyggju, að undirbúa frekari mótmæli við Austurvöll og almennt að finna eitthvað nýtt til að röfla yfir. Ragnar og eiginkonan byrja alltaf daginn með kaffi í rúmið.

Rafmyntafyrirtæki eykur umsvif þrátt fyrir orkuskort
Kínverskt rafmyntafyrirtæki segist ætla að auka umsvif sín á Íslandi. Íslensk raforkufyrirtæki segja ekki rúm fyrir aukningu rafmyntagraftar.

Ráðin nýir framkvæmdastjórar hjá Kynnisferðum
Hilmar Stefánsson, Þóra Eggertsdóttir og Ófeigur Friðriksson hafa öll verið ráðin nýir framkvæmdastjórar hjá Kynnisferðum.

Sakar Þorgerði Katrínu um ítrekaðar rangfærslur
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði segir umræðu um mjólkurverð á Íslandi einkennast af vanþekkingu, röngum tölum og jafnvel popúlisma. Hún segir formann Viðreisnar fara með endurteknar rangfærslur um málið. Mjólkurverð hafi hækkað minnst á Íslandi.

Monika tekur við formennsku af Hannesi
Monika Hjálmtýsdóttir hefur tekið verið formennsku í Félagi fasteignasala. Hún tekur við af Hannesi Steindórssyni sem hafði gegnt embættinu frá 2021.

Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“
„Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech.

Fyrsta flugið til Detroit
Fyrsta áætlunarflug Icelandair til bandarísku borgarinnar Detroit fór í loftið á fimmta tímanum í dag. Félagið stefnir á að fljúga fjórum sinnum í viku til borgarinnar.

Samið við Aðalverktaka um breikkun Reykjanesbrautar
Fulltrúar Vegagerðarinnar og Íslenskra aðalverktaka skrifuðu í gær undir verksamning um tvöföldun Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns ásamt aðliggjandi hliðarvegum. Aðalverktakar áttu lægsta tilboð þegar þau voru opnuð 5. apríl síðastliðinn, buðu tæpa fjóra milljarða króna í verkið, sem var meira en einum milljarði undir áætluðum verktakakostnaði.

Starfsfólkið himinlifandi með breytinguna
Eigendur útivistarverslunarinnar GG sport hafa ákveðið að stytta opnunartíma sinn og loka verslunum sínum klukkan 17. Fylgja þeir þar með fordæmi fleiri verslunareigenda sem hafa tekið svipuð skref. Annar eigendanna segir starfsfólk verslunarinnar vera himinlifandi með breytinguna.

Ná saman um regluverk um rafmyntir
Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkja lögðu blessun sína yfir reglugerð um rafmyntir sem verður það fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Starfsemi rafmyntarfyrirtækja verður leyfisskyld með reglunum sem eru sagðar setja þrýsting á bandarísk og bresk stjórnvöld að setja sér sambærileg lög.

Spá því að vextir hækki um heila prósentu
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um eitt prósentustig í næstu viku. Ef spá Landsbankans gengur eftir verða stýrivextir hærri en þeir hafa verið í rúm þrettán ár.

Vilja kaupa 1.700 íbúðir og leigja út á kostnaðarverði
Samtök leigjenda hafa óskað eftir viðræðum við stjórn Heimstaden um kaup á 1.700 íbúðum félagsins. Hugmynd samtakanna er að nýtt samvinnufélag kaupi íbúðirnar og að þær verði leigðar út á kostnaðarverði. Samvinnufélagið myndi tryggja leigjendum öryggi og langtímasamninga.

Talið víst að Jens Garðar verði næsti framkvæmdastjóri SA
Samkvæmt heimildum Vísis er talið næsta víst að Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða hf. og Laxa fiskeldis hf. verði fyrir valinu sem næsti framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mikið er undir.

Fljótandi áburður sem hentar íslenskum aðstæðum
Eco Garden, hefur í samstarfi við N-XT og Healthy Soil, sett á markað nýja spennandi lausn fyrir garðaunnendur.

Mikilvægt að ESB viðurkenni sérstöðu Íslands í flugsamgöngum
Forstjóri Icelandair segir það mikilvægt að forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hafi viðurkennt sérstöðu Íslands í tengslum við breytingar á losunarheimildum til flugfélaga í gær. Verði ekki tekið tillit til sjónarmiða Íslands gæti verðmunur á flugferðum frá landinu hlaupið á fleiri þúsundum króna.

Breytt viðhorf: Unga fólkið að velja nám á allt annan hátt en áður
„Við lifum á mjög merkilegum tímum. Gervigreindin mun til dæmis hafa mikil áhrif á nám og það hvernig fólk mun læra, en við erum ekki enn farin að sjá hvernig,“ segir Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs. Sem meðal annars heldur utan um sveinspróf í iðngreinum.

Eyjólfur Árni endurkjörinn formaður með 99 prósent atkvæða
Eyjólfur Árni Rafnsson var endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins á aðalfundi samtakanna í dag.

Flogið frá Akureyri til Sviss í vetur
Svissneska ferðaskrifstofan Kontiki hefur ákveðið að bjóða upp á vetrarferðir til Norðurlands næsta vetur, í beinu flugi frá Zürich. Þetta er í fyrsta sinn sem ferðaskrifstofan býður ferðir beint til Norðurlands, en hún hefur töluverða reynslu af því að selja ferðir til Íslands allt árið um kring. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

Tekur við stöðu formanns Félags kvenna í atvinnulífinu
Unnur Elva Arnardóttir, forstöðumaður hjá Skeljungi, var kjörin nýr formaður Félags kvenna í atvinnulífinu á aðalfundi félagsins sem haldinn var í síðustu viku.

Ingólfur og Lijing til Íslandshótela
Ingólfur Haraldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fasteigna hjá Íslandshótelum og Lijing Zhou sem sérfræðingur í sjálfbærni hjá sama fyrirtæki.

„Ekki reikna með að aðstæður séu að fara að lagast strax á næstunni“
Björn Berg Gunnarsson hefur starfað í bankakerfinu í vel á annan áratug, síðast sem deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka. Nú hefur Björn látið af störfum í bankanum til að hefja sjálfstæðan rekstur sem fjármálaráðgjafi fyrir einstaklinga um sparnað, fjárfestingar, lánamál og annað.