Viðskipti

Deilu Íslands og Iceland Foods ekki lokið
Deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er ekki lokið. Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er með málið til umfjöllunar eftir að breska verslunarkeðjan áfrýjaði á síðasta ári úrskurði sem féll Íslandi í vil árið 2019.

Láta kjötið meyrna í minnst þrjár vikur
Hjá Kjötkompaní fer fram hringrás í bak kælinum svo kjötið meyrni vel. Það gerir gæfumuninn.

Ráðinn yfirleikjahönnuður Solid Clouds
Stefán Friðriksson hefur verið ráðinn yfirleikjahönnuður hjá Solid Clouds. Hann hefur síðustu ár starfað sem yfirhönnuður á Angry Birds Match-leiknum.

Kjaraþróun komið verulega niður á hvata ungs fólks til að mennta sig
Kaupmáttur háskólamenntaðra hefur aukist talsvert minna en kaupmáttur annarra hópa frá 2019. Hækkaði launavísitalan allt að tvöfalt meira hjá láglaunahópum innan ASÍ og BSRB en launavísitala háskólamenntaðra með millitekjur hjá BHM og Kennarasambandi Íslands.

Forstjóri Barclays hættir vegna tengsla við Epstein
Jes Staley, forstjóri breska bankans Barclays, sagði af sér í dag í kjölfar skýrslu breska fjármálaeftirlitsins um tengsl hans við Jeffrey Epstein, bandaríska auðkýfingsins, sem var ákærður fyrir mansal.

Icelandair vill að sóttvarnalæknir losi ferðamenn við skyldubundið Covid-próf
Talsmaður Icelandair kallar eftir því að ferðamönnum hætti að vera gert að sýna fram á neikvætt Covid-próf við komu til landsins, eins og gildir víðast hvar á Norðurlöndunum. Sóttvarnalæknir er með tillögur í smíðum að breytingum á landamærunum.

„Verslunin hefur færst heim“
Erlend verslun hefur dregist saman um tvö þriðju síðustu ár meðan sú innlenda hefur aukist talsvert. Innlend fataverslun á netinu þrefaldaðist á síðasta ári og sú erlenda jókst um helming. Verslunin hefur færst heim segir framkvæmdastjóri Kringlunnar.

Icelandair hefur fraktflug milli Ítalíu og Bandaríkjanna
Icelandair Cargo hefur í dag fraktflutningar milli Mílanó á Ítalíu og New York í Bandaríkjunum. Fram að áramótum hið minnsta verður flogið þrisvar í viku.

Kristín Katrín ráðin forstöðumaður hjá Eimskip
Kristín Katrín Guðmundsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip.

Svansí flogin til Icelandair
Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir hefur verið ráðinn vörustjóri auglýsingatekna hjá Icelandair. Hún upplýsir um vistaskipti sín á Facebook.

Lilja kemur frá Landsbankanum til Play
Lilja Pálsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður fjár- og áhættustýringar hjá Play.

Bilun hjá Landsbankanum og fólk hvatt til að nota netbankann
Landsbankaappið hefur verið óaðgengilegt viðskiptavinum stóran hluta dagsins. Unnið er að viðgerð á appinu og eru viðskiptavinir hvattir til að nota netbankann á meðan.

Íslenskir hafrar sérstaklega bragðmiklir og hollir
Hafrarnir frá Sandhóli eru heilsuvara vikunnar á Vísi.

„Mánudagsmorgnar alltaf í sérstöku uppáhaldi“
Kristján Sigurjónsson hefur haldið úti Túrista í tólf ár, en búið erlendis allan tíman og gerir enn.

„Af hverju erum við hér?“
„Af hverju erum við hér?“ spurði Guðrún Jóhannesdóttir sjálfa sig í göngutúr laust fyrir aldamótin.

Jólasveinninn gæti lent í vandræðum
Jólasveinum er vandi á höndum víða um Evrópu vegna mikilla verðhækkana á leikföngum. Og ekki aðeins er dótið dýrara, heldur er vöruskortur líka farinn að bíta leikfangaverslanir.

Samþykktu fimmtán prósenta lágmarksskatt á fyrirtæki
Leiðtogar tuttugu stærstu hagkerfa heims hafa lýst yfir stuðningi við áætlun um lágmarksskatt fyrirtækja á heimsvísu. Viðræður hafa staðið yfir um mánaða skeið en samkvæmt yfirlýsingu sem samþykkt var á G20-fundinum í Róm í dag á skatturinn að vera fimmtán prósent.

„Hefð að eiga smá kósý morgun með sjálfri mér“
Kristín Guðjónsdóttir starfar hjá 200 ára gömlu tryggingarfyrirtæki í Osló sem enn ratar á lista yfir eftirsóttustu vinnustaðina í Noregi.

Vinnan og félagslíf færð í sýndarheima næstu kynslóðar internetsins
Í náinni framtíð verður fólki mögulegt að heimsækja vini sína, horfa með þeim á kvikmynd eða fara á tónleika, án þess að fara úr húsi eða standa upp úr sófanum. Einnig verður hægt að fara í göngutúra um fornar borgir og jafnvel aðrar plánetur, skoða söfn eða versla í stafrænum verslunarrýmum þar sem gervigreind sinnir afgreiðslustörfum.

Heimila samruna Marels og Völku
Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við samruna Marels og Völku. Á annan tug athugasemda bárust eftirlitinu vegna málsins og töldu keppinautar fyrirtækjanna að sameinað fyrirtæki myndi ná mjög sterkri stöðu í Evrópu og einokunarstöðu á vissum mörkuðum.

Róbert Wessman stækkar vínveldið
Róbert Wessman hefur stækkað vínveldi sitt en hann hefur gengið frá kaupum á 45 hektara vínekru í Frakklandi. Fyrir á Róbert vínekru í Périgord Pourpre og rekur hann vínframleiðsluna Maison Wessman.

Frá Arion banka til Creditinfo
Vilhjálmur Þór Svansson hefur verið ráðinn forstöðumaður þjónustu- og lögfræðisviðs Creditinfo á Íslandi. Vilhjálmur Þór kemur til Creditinfo frá Arion banka þar sem hann hefur starfað frá árinu 2011.

Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa
Guðný Halla Hauksdóttir, Hákon Davíð Halldórsson og Jóhann Valur Sævarsson hafa verið ráðin til Icelandair sem nýja stjórnendur til að efla enn frekar þjónustu við farþega sem og stafræna þróun.

Bankarnir þrír högnuðust um sextíu milljarða
Sé hagnaður stóru viðskiptabankanna þriggja hér á landi fyrir fyrstu níu mánuði ársins lagður saman nemur hann rétt rúmlega 60 milljörðum króna.

Forysta kvenna á Íslandi kynnt í dag
Í dag klukkan 15 verður haldin málstofa þar sem kynntar verða rannsóknir um forystu kvenna á Íslandi og fjárfestingar með kynjagleraugum skoðaðar.

Bein útsending: Uppbygging íbúða í Reykjavík
Árviss kynningarfundur borgarstjóra Reykjavíkur um uppbyggingu íbúða í borginni verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur milli klukkan 9 og 11. Hægt er að horfa á fundinn á Vísi.

Ósýnilega vinnan þín (sem er launalaus)
Við getum bætt tímastjórnunina okkar verulega með því að verða meðvitaðri um í hverju skuggavinnan okkar felst alla daga.

Hótelin með snjóhengju skuldbindinga eftir faraldurinn
Formaður félags Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir að það muni taka hótelin tíma að koma rekstrinum í jafnvægi eftir hrun ferðaþjónustunnar í covid faraldrinum. Bankar og fleiri aðilar þurfi að sýna þeim skilning og stjórnvöld að jafna stöðu hótelanna gagnvart leiguíbúðum og hótelskipum.

Facebook breytir um nafn
Samfélagmiðlarisinn Facebook hyggst nú breyta um nafn. Nýja nafnið verður "Meta" en nafnbreytingin er liður í áherslubreytingu fyrirtækisins.

Íslandsbanki hagnaðist um 7,6 milljarða
Íslandsbanki hagnaðist um 7,6 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi og hefur afkoma bankans ekki verið betri í fimm ár. Til samanburðar hagnaðist Íslandsbanki um 3,4 milljarða á sama tíma í fyrra.