

Styrkir sem stjórnvöld veittu háskólum til að bjóða upp á sumarnámskeið á síðasta ári fólu ekki í sér ólögmæta ríkisaðstoð að sögn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Félag atvinnurekenda (FA) er ósammála niðurstöðunni og segir hana vera vonbrigði.
Í dag hófust viðskipti með hlutabréf tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds í Kauphöllinni í morgun. Sigurlína Ingvarsdóttir, stjórnarformaður Solid Clouds, hringdi inn fyrstu viðskiptin.
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Eyjólfur er með viðskiptafræðimenntun frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Einnig er Eyjólfur að taka löggildingu fasteigna- og skipasala, með skipstjórnarréttindi, vélavarðaréttindi og knattspyrnuþjálfararéttindi.
Salmonella hefur greinst í bananaflögum sem seldar eru í verslun Tiger á Laugavegi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur látið stöðva söluna.
Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar.
Auðjöfurinn Richard Branson ætlar að láta skjóta sér út í geim á sunnudaginn. Hinn 70 ára gamli Branson mun fara út í geim um borð í VSS Unity, geimflaug fyrirtækisins Virgin Galactic, sem Branson á.
Hlutabréfaverð flugfélagsins Play hefur hækkað mikið í fyrstu viðskiptum eftir að félagið var skráð í Kauphöllina í morgun. Þegar best lét í morgun höfðu bréfin hækkað um 41 prósent í verði, miðað við útboðsgengið 18, sem var gengi almennra fjárfesta.
Enn er mikil eftirspurn á fasteignamarkaði. Sölutími íbúða heldur áfram að styttast, fasteignaverð hefur hækkað um allt land, auglýstar eignir hafa ekki verið færri í fjögur ár og hefur leiguverð hækkað á höfuðborgarsvæðinu hækkað í fyrsta skipti í níu mánuði.
Hópur starfsmanna pítsukeðjunnar Pizzunnar telur sig hlunnfarinn um laun frá fyrirtækinu. Stéttarfélag starfsmannanna er með á milli sex og sjö milljóna króna í innheimtu frá fyrirtækinu vegna vangreiddra launa, einkum þar sem yfirvinnutímar hafa ekki verið greiddir sem slíkir.
Við ræðum oft um mikilvægi þess að aðskilja vinnu og einkalíf. Sem þó getur verið hægara sagt en gert. Því satt best að segja getur líðanin okkar verið mjög mismunandi þegar að við komum heim eftir vinnu.
Ríkissaksóknarar 36 ríkja Bandaríkjanna, auk saksóknara Washington DC, hafa tekið höndum saman og höfðað samkeppnismál gegn Google. Þeir saka fyrirtækið um að brjóta samkeppnislög varðandi Google Play, þar sem fólk sækir hin ýmsu forrit í síma sína og önnur tæki.
N1 hefur hafið sölu lausasölulyfja í Staðarskála í Hrútafirði. Hingað til hafa vegfarendur um þjóðveg 1 þurft að fara tugi kílómetra til að sækja þessa þjónustu.
Forráðamenn flugfélagins Play og Kauphallar Íslands fögnuðu því í tólf þúsund feta hæð yfir hálendi Íslands í dag að fyrirtækið er að fara á hlutabréfamarkað. Hin hefðbundna bjölluhringing var tekin upp til að sýna á föstudag þegar markaðsviðskipti hefjast með bréf félagsins.
Hugbúnaðarfyrirtækið Init braut samninga við Reiknistofu lífeyrissjóða (RL) með því að semja við undirverktaka án heimildar. Þetta er niðurstaða úttektar ráðgjafafyrirtækisins Ernst & Young (EY) á samningi aðilanna um rekstur tölvukerfisins Jóakims.
Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti nýrra óverðtryggðra íbúðalána með föstum vöxtum um 0,10 til 0,15 prósentustig.
Fjórir aðilar skiluðu inn umsókn til Vegagerðarinnar um þátttöku í innkaupaferli vegna nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót en frestur rann út í gær. Þetta er fyrsta útboðið frá því sérstök lög voru samþykkt í fyrra sem heimila ríkinu að semja við einkaaðila um fjármögnun samgönguframkvæmda.
Skiptum er lokið í þrotabúi veitingastaðarins Skelfiskmarkaðarins sem rekinn var við Klapparstíg. Lýstar kröfur í þrotabúið námu 295 milljónum og fengust tæplega fjórar milljónir greiddar.
Rapparinn Herra Hnetusmjör, Árni Páll Árnason, hefur komið á laggirnar eigin nikótínpúðabúð á Dalvegi í Kópavogi, sem opnar kl. 14 í dag.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands og Arctica Finance hf. gerðu með sér samkomulag þann 1. júní síðastliðinn um að ljúka deilum sínum með sátt. Arctica Finance mun greiða 700 þúsund krónur vegna brota félagsins í verðbréfaviðskiptum.
Það skal enginn halda það að annað fólk fari í gegnum lífið án þess að alls kyns áskoranir geti komið upp heima fyrir. Þessar áskoranir geta verið af öllum toga og oft tekið á. Allt frá því að hafa áhyggjur af krökkunum, hjónabandinu eða hreinlega foreldrunum. Veikindi geta komið upp hjá vinum og vandamönnum, langvarandi og alvarleg eða bara að amma gamla fór í mjöðminni og þarf tímabundna hjálp.
Í tilkynningu frá Högum hf. í dag kemur fram að á fundi stjórnar félagsins þann 25. júní hafi verið ákveðið að veita tilteknum lykilstarfsmönnum félagsins kauprétti að allt að 11.806.246 hlutum í félaginu, eða sem samsvarar einu prósenti af hlutafé Haga hf.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu eiga í vandræðum með að fá fólk til vinnu. Hótelrekandi segir skort á starfskröftum valda því að opnun ferðaþjónustunnar gangi hægar en hún gæti annars gert.
Fjöldi farþega í millilandaflugi Icelandair rúmlega þrefaldaðist á milli maí og júní 2021. 72 þúsund farþegar flugu með félaginu í júní samanborið við 22 þúsund í fyrri mánuði. Samhliða því heldur farþegum í innanlandsflugi áfram að fjölga.
Íslenska krónan styrktist á móti evru í júní, en veiktist á móti Bandaríkjadal. Af átján viðskiptadögum í júní greip Seðlabanki Íslands inní á markaðinn sex daga, öll skiptin á kauphliðinni. Seðlabankinn keypti evrur fyrir 18,2 milljarða króna sem eru mestu kaup í einum mánuði síðan í febrúar 2017.
Skiptum á þrotabúi bílaleigunnar GK-ACR ehf. er lokið en lýstum kröfum í þrotabúið námu 827 milljónum króna. Bílaleigan, sem áður hét Auto Car Rental, var úrskurðuð gjaldþrota í febrúar 2019.
EFLA og Tækniþjónusta Vestfjarða ehf. hafa undirritað samning um að EFLA kaupi allt hlutfé Tækniþjónustunnar.
Fjallsárlón á Breiðamerkursandi er ein af perlum Íslands.
Síminn hefur tryggt sér sjónvarpsréttinn að ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu til ársins 2025. Síminn hafði betur í baráttu við Sýn og Viaplay sem sömuleiðis buðu í sjónvarpsréttinn.
Marel hefur skrifað undir samning um kaup á Völku ehf., íslensku hátæknifyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað.
Kjarasamningur iðnaðarmanna við Rio Tinto á Íslandi hefur verið samþykktur en atkvæðagreiðslu lauk í morgun.