Innlent

Árni verði áfram

Árni Magnússon á ekki að víkja úr ráðherrastóli 15. september næstkomandi segja Framsóknarmenn í Reykjavíkurkjördæmi - norður. Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis - suður sendi hins vegar frá sér ályktun í dag þar sem skorað er á flokksforystu Framsóknar að virða jafnréttisáætlun flokksins. Ólgan innan Framsóknarflokksins vegna yfirvofandi fækkunar í ráðherraliði flokksins heldur áfram. Í lok apríl síðastliðnum óskaði stjórn kjördæmisráðs framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi eftir fundi með Halldóri Ásgrímssyni, formanni Framsóknarflokksins, vegna málsins þar sem færa átti rök fyrir því að Siv Friðleifsdóttir yrði ekki látin víkja úr ráðherraliði flokksins 15. september. Formaðurinn hefur ekki enn svarað beiðninni þrátt fyrir að liðnir séu tæpir fjórir mánuðir. Fleiri aðildarfélög Framsóknarflokksins hafa látið í sér heyra upp á síðkastið þar sem lýst er yfir stuðningi við Siv, eða að minnsta kosti farið fram á að konum í ráðherraliði flokksins fækki ekki. Í morgun sendi stjórn Framsóknarfélagsins í Reykjavíkurkjördæmi - suður frá sér ályktun í þessa veru og á svipuðum nótum voru ályktun frá fulltrúaráði Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði í gær og heilsíðuauglýsing sem fjörutíu framsóknarkonur stóðu fyrir á þriðjudaginn. Framsóknarmenn í Reykjavíkurkjördæmi - norður segja hins vegar að það sé Árni Magnússon sem alls ekki megi víkja. Gestur Gestsson, formaður stjórnar Framsóknarfélagsins í Reykjavík - norður, segir að Árni sé búinn að standa sig vel og ætti því að halda áfram sem ráðherra. Á sama máli er Þorlákur Björnsson, formaður Kjördæmissambands flokksins í kjördæminu. Hann segir að ef það sé krafa framsóknarkvenna að Árni víki þá sé það ekki sanngjörn krafa því hann sé mjög hæfur stjórnmálamaður og hafi verið afskaplega duglegur frá því hann kom í félagsmálaráðuneytið. Aðspurður hver eigi þá að fara segist Þorlákur ekkert vilja segja um það en hann kveðst ekki vilja vera í sporum Halldórs Ásgrímssonar. Hægt er að hlusta á viðtal við Þorlák Björnsson, formann Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi - norður, úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×