Alvarleg mistök skipta bara máli 30. september 2004 00:01
Kappræðurnar í Bandaríkjunum í kvöld skipta ekki meginmáli í kosningabaráttunni nema því aðeins að frambjóðendurnir geri alvarleg mistök. Þetta segir góðvinur Bush eldri sem staddur er hér á landi. Hann telur að Bush yngri hafi forskot í kosningabaráttunni vegna þess að hann sé einfaldlega viðkunnanlegri en Kerry. James Humes sagnfræðiprófessor hefur góða innsýn í bandarísk stjórnmál enda hefur hann aðstoðað og skrifað ræður fyrir fimm Bandaríkjaforseta: Eisenhower, Nixon, Ford, Reagan og Bush eldri. Humes er staddur hérlendis til að halda fyrirlestra um bandarísk stjórnmál og ætlar að sjálfsögðu fylgjast grannt með sjónvarpskappræðunum í nótt. Hann telur þó ólíklegt að þær komi til með að skipta sköpum í kosningabaráttunni. Hann segir fjölmiðlana nefnilega gera meira úr mikilvægi kappræðnanna en efni standa til. Humes segir Kerry verða að standa sig vel í kappræðunum því hann sé með lakari stöðu. Prófessorinn segir þetta þó ekki form sem komi honum að gagni og reyndar sé þetta engar kappræður. „Sá sem er viðkunnanlegri og sýnir af sér meira þokka í sjónvarpinu vinnur,“ segir Humes. Þrátt fyrir að Bush hafi forskot og sé líklegri til að standa sig betur í kappræðunum leggur Humes áherslu á að sigurinn sé síður en svo í höfn. Bush myndi vinna í dag en hann gæti gert eitthvert axarskaft. „Bush eldri leit á úrið sitt í kappræðunum við Clinton og virtist hugsa: „Æ, við skulum ljúka þessu.“ Þetta skaðaði Bush eldri,“ segir James Humes.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Tilkynnt um helst til ungan ökumann Innlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Innlent Fleiri fréttir Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Sjá meira