Innlent

Erill hjá lögreglu á Ísafirði

Erill var hjá lögreglunni á Ísafirði í gærkvöldi og í nótt, einkum í tengslum við dansleik sem einstaklingar héldu á Suðureyri. Tilkynnt var um eina líkamsárás en kæra hefur ekki borist. Annars var rólegt hjá lögreglu víðast hvar um landið. Fimm tilfelli ölvunaraksturs komu þó til kasta lögreglunnar í Hafnarfirði. Ökumennirnir sem þar áttu hlut að máli reyndust þó ekki nema fjórir því einn þeirra var tekinn í tvígang fyrir þessa iðju og virtist því ekki hafa lært mikið af reynslunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×