Innlent

Ögmundur vill ræða Kabúl

Ögmundur Jónasson, þingmaður vinstri-grænna hefur óskað eftir umræðu utandagskrár á Alþingi um störf íslenska friðargæsluliðsins í Kabúl. Ögmundur segir nauðsynlegt að ræða málið á vettvangi Alþingis: "Hér eru menn á blússandi fart, einir sér á bakvið tjöldin að taka ákvarðanir án lýðræðislegrar umræður." Óvíst er hvenær umræðan verður. Þingstörf liggja niðri þessa viku vegna kjördæmaviku og búast má við að bekkurinn verði þunnt skipaður mestalla næstu viku vegna þings Norðurlandaráðs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×