Framsókn slíðri sverðin 13. október 2005 14:56
Fulltrúar á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi, sem haldið var í Borgarnesi um helgina, hvöttu þingflokkinn til að slíðra sverðin. Í ályktun þingsins segir að þingflokkurinn sé hvattur til að leysa þann ágreining sem uppi hafi verið innan hans þannig að allir þingmenn flokksins hafi eðlilega aðstöðu til starfa. Við sögðum frá því í gær að Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem hefur verið látinn fara úr öllum þingnefndum vegna trúnaðarbrests, hefði sagt í ræðustól á þinginu að hann ætlaði ekki að láta hrekja sig úr flokknum. Tólf af tuttugu og sex framsóknarfélögum í kjördæminu höfðu þá harmað brotthvarf Kristins úr nefndum í sérstökum ályktunum. Spurður hvort ekki sé erfitt fyrir flokkinn að starfa fyrst svona mikið ósamlyndi sé um þetta mál segir Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, að það sé alltaf erfitt að standa í málum sem þessum. Hann segir hægt að ræða það frekar hvort þingflokkurinn breyti afstöðu sinni. Kristinn var nýlega skipaður formaður Tryggingaráðs þrátt fyrir trúnaðarbrestinn. Spurður hvort það hafi verið tilraun til að sætta sjónarmið í flokknum segir Halldór að gengið hafi verið frá þessu á milli hans, Kristins og heilbrigðisráðherra á sínum tíma, þ.e. áður en brotthvarf Kristins úr nefndunum kom til.
Framsóknarflokkurinn Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira