Innlent

Steingrímur í forsætisráðuneytið

Steingrímur Sævarr Ólafsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu. Starfið er nýtt og undir það fellur meðal annars umsjón með heimasíðu ráðuneytisins, upplýsingagjöf af ýmsu tagi og afgreiðsla fyrirspurna og skýrslubeiðna. Steingrímur starfaði lengi við blaða- og fréttamennsku, lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en síðast sem kynningarstjóri Fróða. Maki Steingríms er Kristjana Sif Bjarnadóttir og eiga þau þrjú börn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×