Innlent

Vilja opið bókhald flokkanna

Ungir jafnaðarmenn fagna tillögu viðskiptaráðherra um að Ríkisendurskoðun fari yfir fjármál stjórnmálaflokkanna. Vilja þeir enn fremur að sett verði lög um fjárreiður stjórnmálaflokkanna líkt og gilda um aðra sem þiggja fé frá hinu opinbera. Ungir jafnaðarmenn vilja að allir stjórnmálaflokkar sitji við sama borð og opni bókhald sitt á sama tíma. Þeir vilja meina að opinn aðgangur almennings að upplýsingum fjárstuðnings til stjórnmálaflokka sé sjálfsagður hluti lýðræðislegs skipulags.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×