Ekki stætt á veitingu atvinnuleyfa 5. janúar 2005 00:01
Halldór Grönvold, framkvæmdastjóri ASÍ, segir að ASÍ hafi upplýsingar um allnokkra einstaklinga sem hafa fyrr eða síðar og sumir nýverið haft uppi fyrirspurnir um starf hjá Impregilo en þeim ekki verið sinnt og sama gildi um íbúa annars staðar í Evrópu. ASÍ telur að kínversku verkamennirnir, sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir, uppfylli ekki skilyrði laga um réttindi, t.d. meirapróf, og spyr hvort stjórnvöld hafi gengið úr skugga um að fyrirtækið hafi brugðist við þeirri gagnrýni sem sett hafi verið fram um vinnuskipulag og starfsaðstæður að Kárahnjúkum sem geri fyrirtækið samkeppnisfært á íslenskum vinnumarkaði og skapi aðstæður sem Evrópubúar sætti sig við. ASÍ gagnrýnir fyrirtækið fyrir að virða ekki lágmarkslaun kjarasamninga og brjóta þar með lög. "Þetta er fyrst og fremst pólitísk spurning sem lýtur almennt að vinnumarkaðnum, stöðu hans og þróun. Þar liggur ábyrgð ráðherra og stjórnvalda. Þetta fyrirtæki starfar ekki á íslenskum vinnumarkaði við þau skilyrði sem hér hafa gilt. Önnur fyrirtæki eru farin að óska eftir sambærilegri meðhöndlun og þá reynir á hvort stjórnvöld eru tilbúin til að verja með okkur þann vinnumarkað og þá sátt sem hér hefur gilt," segir Halldór. ASÍ hefur takmarkaðar upplýsingar um þá Portúgali sem hafa verið snuðaðir hjá Impregilo og því takmarkaða möguleika á að höfða mál fyrir þeirra hönd. "Að ýmsu leyti er skaðinn skeður og spurning hve mikið við getum bætt úr því. Þetta hlýtur samt að vera eitt af því sem ráðherra tekur til álita þegar hann veltir fyrir sér atvinnuleyfum: Er stætt á því að veita fyrirtæki, sem verður uppvíst að svona hlutum, atvinnuleyfi?" Ósk Impregilo um atvinnuleyfi fyrir Kínverja er til umfjöllunar hjá Vinnumálastofnun.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira