Innlent

Yfirlýsingin bíður birtingar

Yfirlýsing Þjóðarhreyfingarinnar þar sem framgöngu íslenskra stjórnvalda í Íraksmálinu er mótmælt mun birtast í vikunni í bandaríska dagblaðinu New York Times. Að sögn Hans Kristjáns Árnasonar, eins ábyrgðarmanna fjársöfnunarinnar, er ekki ljóst hvaða dag hún muni birtast en það gæti þess vegna orðið á morgun. Í skiptum fyrir óvissuna fær hreyfingin ríflegan afslátt af birtingarkostnaði. Fjársöfnunin hefur gengið vonum framar og er verið að vinna að flutningi nokkur hundruð eintaka af blaðinu hingað til lands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×