Sport

Efstu liðin unnu í gær

Sextánda umferðin í Intersport-deildinni í körfuknattleik var leikin í gærkvöldi. Fjölnir lagði Grindavík að velli á útivelli 102-98. Jeb Ivey skoraði 35 stig fyrir Fjölni en Darrel Lewis var atkvæðamestur heimamanna og skoraði 27 stig. Njarðvík marði sigur á Hamri/Selfoss með 79-78 þar sem Brenton Birmingham skoraði 27 stig fyrir Njarðvík. Þá burstaði KR Tindastól 114-82, en Cameron Echols skoraði 28 stig fyrir Vesturbæinga. Keflavík bar sigurorð af ÍR, 101-93, þar sem Gunnar Einarsson var atkvæðamestur Íslandsmeistarana og skoraði 25 stig. Snæfell vann Skallagrím, 77-73, Calvin Clemmons skoraði 22 stig fyrir Snæfell. Haukar unnu sex stiga sigur á KFÍ á Ísafirði, 101-95. Mike Manciel skoraði 27 stig fyrir gestina en Joshua Helm 35 fyrir Ísfirðinga. Keflavík er á toppnum með 24 stig ásamt Snæfelli, Njarðvík og Fjölnir eru í þriðja og fjórða sæti með 22 stig, Skallagrímur og ÍR eru með 18 stig, KR með sextán í sjöunda sæti og Grindavík í áttunda sæti með 14 stig. KFÍ er á botninum með 2 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×