Sport

Rockets marði Lakers

Houston Rockets bar sigurorð af Los Angeles Lakers á heimavelli, 103-102, í NBA-körfuboltanum í gærkvöldi. Rockets var með leikinn í hendi sér framan af og leiddi með 15 stigum eftir þriðja fjórðung, 84-69. Í lokaleikhlutanum tók Lakers sig saman með Lamar Odom í broddi fylkingar og þegar 10 sekúndur voru til leiksloka var munurinn aðeins eitt stig og Lakers með boltann. Odom fékk boltann en var yfirdekkaður og sendi á Brian Cook sem reyndi þriggja stiga skot á lokasekúndunum en boltinn skrúfaðist upp úr og Houston slapp með skrekkinn. Lamar Odom var stigahæstur í liði Lakers með 22 stig, 12 fráköst og 8 stoðsendingar en Yao Ming fór fyrir heimamönnum með 23 stig, 8 fráköst og 4 varin skot. "Mér er meinilla við svona leiki, í sannleika sagt," sagði Tracy McGrady, leikmaður Rockets. "Við spiluðum vel í þrjá leikhluta en svo snerist þetta upp í sýningu Lamar Odom. Hann tók leikinn í sínar hendur og við höfðum engin svör."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×