Sport

Bandarísk systkini hjá Haukunum

Demetric Shaw er kominn til reynslu hjá Intersportliði Hauka í körfuboltanum en slæmt gengi Haukanna (2 sigrar í síðustu 9 leikjum) hefur dregið liðið alla leið niður í harða fallbaráttu. Haukar létu John Waller fara í síðustu viku og ætla að gefa Shaw tækifæri en hann er einmitt bróðir Ebony Shaw sem hefur leikið við góðan orðstýr hjá kvennaliði liðsins í vetur. Shaw lék með Kent State-háskólanum á árunum 2000 til 2002 og var meðal annars valinn besti varnarmaður sinnar deildar seinni tvö tímabilin (2001 og 2002). Shaw sem er 191 sm hár bakvörður var með 7,3 stig, 5,4 fráköst og 44% skotnýtingu á sínu síðasta tímabili en Kent State-skólinn spilaði í 1. deild bandaríska háskólaboltans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×