Innlent

Sjóðirnir liggja frystir í banka

Sjóðir Bandalags jafnaðarmanna liggja frystir í Landsbankanum og svo virðist sem enginn geti gert tilkall til þeirra. Stefán Benediktsson, fyrrverandi alþingismaður, segir flokkssystkin sín hafa ásælst sjóðina á sínum tíma en ekki haft erindi sem erfiði. Í þættinum Einu sinni var sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld rifjar Stefán upp sögu Bandalags jafnaðarmanna. Í viðtali við Evu Maríu Jónsdóttur segir Stefán frá þeirri orrahríð sem gekk yfir eftir lát forystumannsins, Vilmundar Gylfasonar. Til að gera langa sögu afar stutta var Stefán sakaður um fjármálamisferli og bandalagsmenn gengu til samstarfs við Alþýðuflokkinn. Í kjölfarið tilkynnti Stefán að hann myndi hætta þátttöku í stjórnmálum og þá hætti „gjörningaveðrið“ að hans sögn, nema að ákveðnir aðilar gerðu tilkall til þeirra sjóða sem bandalagið hafi ítrekað reynt að skila fjármálaráðherra sem taldi sig ekki geta tekið við þeim. Því voru þeir frystir í Landsbankanum þangað til einhver sem gæti gert tilkall til þeirra gæfi sig fram. Það verður hins vegar aldrei að sögn Stefáns því búið hafi verið þannig um hnútana að ekki sé hægt að endurstofna Bandalag jafnaðarmanna en það er eini aðilinn sem geti gert tilkall til sjóðanna. Leiða má að því líkur að um sé að ræða það fjármagn sem stjórnmálaflokkar fá úr sjóðum ríkisins. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá fjármálaráðuneytinu í dag hefur engin krafa verið gerð af hendi ríkisins til fjárins. Þá virðist ekkert hafa verið bókfært hjá ráðuneytinu um þá beiðni að fyrrverandi fjármálaráðherra, Þorsteinn Pálsson, tæki við fénu á ný fyrir hönd ríkisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×