Innlent

Vill draga úr niðurrifi húsa

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, ætlar að leggja fram tillögu á fundi borgarstjórnar í dag um að nýjum starfshópi verði komið á fót til að endurskoða deiliskipulag við Laugaveg. Markmið endurskoðunarinnar verði að draga úr þeim víðtæku heilmildum til niðurrifs gamalla húsa við Laugaveg sem ætlunin sé að veita. Samkvæmt tillögu Ólafs verður lögð áhersla á að varðveita fleiri gömul hús við Laugaveg og stuðla að endurbyggingu þeirra og góðu viðhaldi fremur en niðurrifi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×