Innlent

Engin stefnubreyting

Ályktun Framsóknarflokksins um hugsanlegan undirbúning aðildarviðræðna við Evrópusambandið breytir engu um stefnu stjórnvalda og markar engin tímamót, að sögn Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra. "Ég fæ ekki séð það, nei," svaraði Davíð spurningu fréttamanns Útvarpsins í gær um hvort ályktun flokksþings Framsóknar markaði tímamót. Hann sagði ekkert hafa breyst "nema ég sé ekki læs" í viðtali við fréttastofu Útvarps.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×