Innlent

Frjálslyndir þinga um helgina

Landsþing Frjálslynda flokksins hófst síðdegis. Formaður flokksins, Guðjón A. Kristjánsson, hélt ræðu í upphafi þings, en það stendur yfir í dag og á morgun. Allt bendir til þess að kosið verði á milli manna um æðstu embætti flokksins. Sigurður Ingi Jónsson hefur boðað framboð sitt gegn formanninum og Gunnar Örlygsson alþingismaður býður sig fram til embættis varaformanns gegn sitjandi varaformanni, Magnúsi Þór Hafsteinssyni alþingismanni. Margar ályktanir liggja fyrir þinginu, meðal annars um skattamál, sjávarútveg og velferðarmál.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×