Innlent

Margrét hvött til framboðs

Kosið verður á milli að minnsta kosti tveggja manna sem bjóða sig fram til varaformanns í Frjálslynda flokknum á landsþingi flokksins sem nú stendur yfir á Kaffi Reykjavík. Gunnar Örn Örlyggson og Magnús Þór Hafsteinsson, núverandi varaformaður, hafa þegar tilkynnt um framboð en nú gengur á milli manna undirskriftarlisti þar sem Margrét Sverrisdóttir er hvött til að blanda sér í baráttuna. Ekki er ljóst hvenær verður kosið en nú fer fram umræða um ýmsar ályktanir. Samkvæmt upplýsingum Vísis eru tæplega 200 manns á þinginu og hafa allir kosningarétt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×