Innlent

Í alla staði gagnlegur

"Fundurinn var í alla staði gagnlegur en það kom ekkert fram sem ekki hafði heyrst áður, " segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, eftir fjölmennan borgarafund sem haldin var um uppbyggingu og verndun Laugavegs í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Á fundinum komu fram ólík sjónarmið húsaverndunarsinna og svo þeirra sem telja að fegra verði Laugaveginn hið fyrsta eigi verslun og þjónusta að lifa þar áfram. Fjölmargir báðu um orðið á fundinum og ljóst að borgarbúum er ekki sama hvernig farið verður með þessa aðalverslunargötu Reykvíkinga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×