Innlent

Furða sig á RÚV-frumvarpinu

Þingmenn stjórnarandstöðunnar lýsa furðu sinni á frumvarpi menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið sem þeir segja slæmt fyrir lýðræðið. Verið að stofna ríkisstjórnarútvarp, segir þingmaður Samfylkingarinnar. Samkvæmt frumvarpi menntamálaráðherra verður Ríkisútvarpinu breytt í sameignarfélag. Ráðherra fer með eignarhlutinn en fimm manna stjórn félagsins verður kjörin á Alþingi. Vinstri - grænir segja það furðulegt að tala um sameignarfélag þar sem ekki sé verið að fjölga eigendum. Þeir telja breytingarnar varasamar því verið sé að fjarlægja stofnunina frá raunverulegum eigendum sínum: íslensku þjóðinni. Ögmundur Jónasson þingflokksformaður segir þetta slæmt fyrir lýðræðið að öllu leyti. „Hvers vegna eru þessar miklu umræður um Ríkisútvarpið núna? Það er vegna þessara tengsla við eigendur Ríkisútvarpsins - mönnum finnst stofnunin koma sér við og hafa aðkomu að því,“ segir Ögmundur. Vinstri - grænir vilja að dregið sé úr pólitískum áhrifum á þann veg að hlutfallskosning á Alþingi ráði ekki um stjórn RÚV. „En í þessu frumvarpi er engin breyting á þessu,“ segir Ögmundur og bætir við að það sé óljóst og með lausa enda. Samfylkingin gagnrýnir að meirihluti Alþingis fái meirihluta í útvarpsstjórn og bendir á að hafi markmiðið með frumvarpinu verið að draga úr pólitískum áhrifum á daglegan rekstur Ríkisútvarpsins, þá gangi það ekki upp samkvæmt þeim breytingum sem lagðar séu til. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að það þurfi að stefna að öflugu, sjálfstæðu almannaútvarpi, en ekki „ríkisstjórnarútvarpi“ eins og þetta frumvarp beri allt of mikinn keim af. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að með frumvarpinu sé verið að að nútímavæða RÚV til að stofnunin geti komið til móts við nýja tíma í fjölmiðlarekstri. „Það sem skiptir máli er að Ríkisútvarpið geti staðið stöndugt í þeirra samkeppni en náttúrlega fyrst og síðast staðið undir því almannaþjónustuhlutverki sem því ber skylda til að uppfylla,“ segir menntamálaráðherra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×