ÍR gæti komið á óvart 18. mars 2005 00:01
Undanúrslitarimma Keflavíkur og ÍR í Úrvalsdeild karla í körfuknattleik hefst í dag. Fyrsti leikur liðanna er í Keflavík og liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í sjálf úrslitin. Keflvíkingar hafa heimavallarréttinn í viðureigninni, eftir að hafa verið með bestan árangur allra liða í deildarkeppninni og kemur það til með að reynast liðinu mikilvægt í úrslitakeppninni því ár og dagar eru síðan liðið tapaði síðast á heimavelli. Fréttablaðið ræddi við Einar Bollason, körfuboltasérfræðing og fékk hann til að spá í spilin fyrir rimmuna. "Þessi viðureign verður athylisverð og ég held að þarna gætum við verið að horfa fram á óvænt úrslit. Ég held að ÍR-ingarnir eigi eftir að koma á óvart og vinna í Keflavík, gott ef þeir stela ekki fyrsta leiknum í Keflavík. Mér finnst vera eitthvað óvænt í skýjunum um þessar mundir, ekki síst eftir þessa frábæru fyrstu umferð þar sem þrjár af fjórum viðureignum fara í oddaleik og í fjórðu rimmunni urðu ein óvæntustu úrslit sem litið hafa dagsins ljós á síðustu árum. Ég er ekki frá því að þetta hafi verið skemmtilegasta fyrsta umferð sem ég hef séð í körfunni frá upphafi. Nú held ég bara að tími ÍR sé kominn og að þeir stimpli sig inn sem alvöru spútniklið. Þeir eru með skemmtilegt lið, frábæra Kana og ég held að ef að Gunnar Einarsson nær sér ekki alveg af meiðslum sínum sem hann hlaut á móti Grindavík, þá gætum við verið að horfa fram á að ÍR taki þetta. Þeir eiga eftir að veita Keflvíkingum mikla keppni í þessu einvígi og ef þeir ná að mótívera sig og eru nógu hungraðir gætum við verið að horfa fram á óvænta hluti. Ef Gunnar Einarsson hins vegar getur leikið af fullum krafti spái ég að Keflavík taki þetta í oddaleiknum á heimavelli 3-2, en þetta verða rosalegir leikir", segir Einar Bollason. Fyrsti leikur liðana verður háður í Keflavík klukkan 14 í dag.
Körfubolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Rodri? Bara tvær fljótari en Sveindís Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Bandaríkjamenn að eignast Everton Leiðrétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Haaland ekki refsað Viðar Ari fjórbrotinn Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Clark slegin í augað í frumraun Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Jóhann Berg skoraði en Al Orubah úr leik Sjá meira