Innlent

Mótmæltu stríði á Ingólfstorgi

Nokkur hundruð manns söfnuðust saman á Ingólfstorgi í dag til að krefjast þess að Bandaríkjastjórn dragi herlið sitt út úr Írak. Tilefnið? Jú, í dag eru liðin tvö ár frá því Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra, þar á meðal Íslendingar, ákváðu að koma Saddam Hussein frá völdum í Írak. Er stríðinu í Írak lokið, nú tveimur árum eftir innrásina, og allt komið í farsælan og lýðræðislegan farveg í landinu? Um þetta deila stjórnmálamenn, fræðimenn og almenningur um allan heim en íslenskir andstæðingar Íraksstríðsins sýndu í það minnsta sína skoðun á þessu máli í dag þegar þeir fjölmenntu með mótmælaspjöld á Ingólfstorg til að lýsa yfir andúð sinni á stríðinu sjálfu og framferði Bandaríkjastjórnar í Írak. Jórunn Sigurðardóttir, einn mótmælenda, segist hafa komið til að mótmæla og sýna að hún sé ekki sammála þessu stríði. Þorvaldur Þorvaldsson, sem einnig kom til að mótmæla, segir að flest það sem andstæðingar stríðsins hafi haldið fram fyrir tveimur árum hafi komið fram, m.a. að ástandið í Írak myndi ekki batna við innrásina heldur þveröfugt. Margrét Gauja Magnúsdóttir, sem einnig var á Ingólfstorgi, sagðist vera komin til að nýta rétt sinn til þess að mótmæla Íraksstríðinu og öllum stríðum yfirhöfuð. Björk Davíðsdóttir, sjö ára, sagðist aðspurð vera á móti stríði. Stefán Pálsson, formaður Samtaka herstöðvarandstæðinga, segir aðspurður að mótmælin séu ekki tímaskekkja í ljósi kosninga í Írak í lok janúar. Það sem hafi gerst allra síðustu daga og vikur í Írak sýni að sú furðulega bjartsýni manna um að allt yrði í himnalagi og pennastriki slegið yfir fortíðina vegna kosninganna sé fjarri sanni. Heimurinn horfi upp á borgarastyrjöld í Írak og ekkert bendi til þess að menn séu að nálgast frið og lýðræði í landinu og útlitið sé mjög skuggalegt. Stefán segir að Bush Bandaríkjaforseti hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði í Líbanon á dögunum að það væri ómögulegt að halda frjálsar og lýðræðislegar kosningar þar í landi með erlendan her í landinu. Það gildi í Írak ekki síður en Líbanon.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×