Sport

Oddaleikir annað kvöld

Það er mikil spenna í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta en báðar undanúrslitaviðureignirnar fóru í oddaleiki sem fara fram báðir á miðvikudagskvöldið. Blikar unnu 22 stiga sigur á Valsmönnum í Smáranum, 101-79, og liðin mætast í úrslitaleik á Hlíðarenda og Stjörnumenn tryggðu sér einnig úrslitaleik á Egilsstöðum með sjö stiga sigri á Hetti, 86-79, í Garðabæ. Liðin keppa í þessarri úrslitakeppni um tólfta og síðasta sætið í Intersportdeild karla en Þór frá Akureyri hefur þegar unnið sér inn sitt sæti sem deildarmeistarar en Þór og sigurvegari úrslitakeppninnar taka sæti Tindastóls og KFÍ í deildinni næsta vetur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×