Sport

Regnmaðurinn í grjótinu

Fyrrum körfuboltamaðurinn Shawn Kemp, sem gerði garðinn frægan hjá Seattle Supersonics á sínum tíma, var nýverið handtekinn fyrir að vera með fíkniefni og skotvopn í fórum sínum. Kemp var stöðvaður af lögreglu ásamt félaga sínum og við leit í bílnum komu í ljós tugir gramma af kannabisefnum, lítilræði af kókaíni og svo skammbyssa, sem þeir félagar áttu í vandræðum með að gera grein fyrir. Ferli Kemp í NBA lauk frekar sorglega, en hann var margoft sektaður fyrir brot á fíkniefnalögum á síðustu árum sínum í deildinni og þessi frábæri leikmaður hrapaði fljótt niður af stjörnuhimninum. Hann fitnaði óhóflega og náði lífi sínu aldrei á réttan kjöl, þrátt fyrir að vera veitt mörg tækifæri til að rétta úr kútnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×