Keflavík dró kæruna til baka 6. apríl 2005 00:01
Mikið hefur verið rætt um mistök sem áttu sér stað á ritaraborði á leik Snæfells og Keflavíkur í lokaúrslitum Intersportdeildarinnar í körfuknattleik. Leiknum lyktaði með sigri Snæfells, 97-93, en Keflvíkingar vildu meina að löglega skoruð karfa hefði verið tekin af þeim. Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur ákvað að kæra atvikið til KKÍ en dró síðan kæruna til baka. "Okkur fannst það ekki körfuboltanum til góðs að halda kærunni til streitu," sagði Birgir Már Bragason, varaformaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. "Úrslitakeppnin hefði getað frestast um einhverjar vikur. Þetta var mikið rætt í gær og við ákváðum að bera hag körfuboltans fyrir brjósti, hætta við kæruna, klára þessa keppni og vonast til þess að bragabót verði gerð þarna á," bætti Birgir við. Högni Friðrik Högnason var ritari á leiknum fræga og sagði í samtali við Vísi að sér þættu mistökin leiðinleg. "Ég skil bara ekki hvernig ég fór að því að klikka á því að sjá þessa körfu. Þetta er bara klúður," sagði Högni. "Að við skulum báðir missa af þessu þykir mér alveg furðulegt. Eftirlitsdómarinn átti að vera okkur til halds og trausts en hann missir af þessu líka, karlanginn. Hann var alveg jafn hissa á þessu og ég. Þetta er mjög leiðinlegt mál og náttúrulega ekki viljandi gert. Það er virðingarvert hjá Keflavík að draga kæruna til baka og vonandi kemur svona lagað ekki fyrir aftur." Staðan í einvíginu er 1-1 en næsti leikur fer fram annað kvöld í Sláturhúsinu í Keflavík.
Körfubolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Bandaríkjamenn að eignast Everton Leiðrétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Haaland ekki refsað Viðar Ari fjórbrotinn Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Clark slegin í augað í frumraun Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Jóhann Berg skoraði en Al Orubah úr leik Enn eitt flautumark Leverkusen og Dortmund steinlá Júlíus lagði upp og Fredrikstad nálgast Evrópusæti Lewandowski skoraði tvö og klikkaði á víti í stórsigri Barcelona Sjá meira