Innlent

Sagði þingmenn bera inn gróusögur

Forsætisráðherra sakaði þingmenn Samfylkingarinnar um að bera gróusögur inn á Alþingi í snarpri þingumræðu sem hófst eftir að forseti þingsins neitaði Helga Hjörvar um að bera upp fyrirspurn um meint hagsmunatengsl forsætisráðherra við væntanlega bjóðendur í Landssímann. Helgi Hjörvar kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar í dag til að greina frá því að forseti Alþingis hefði meinað sér að leggja fram fyrirspurn um það hvort forsætiráðherra hygðist gera Alþingi grein fyrir hagsmunatengslum sínum, fjárhagslegum samskiptum sínum og Framsóknarflokksins við væntanlega bjóðendur í hlutabréf ríkissjóðs í Landssímanum. Helgi sagði að þegar forseti Alþingis hefði neitað honum um birta þessa spurningu hefði hann boðist til að umorða hana svo að sett yrði „ef hagsmunatengsl væru“ eða „sé þeim til að dreifa“ eða tryggja að spurningin væri ekki leiðandi. Forseti hafi aftur neitað og sagt að ekki væri um opinbert málefni að ræða heldur dylgjur. Forseti þingsins, Halldór Blöndal, sagði að samkvæmt þingsköpum hefði þingmanninum borið að bera það undir þingfundinn umræðulaust hvort fyrirspurnin skyldi leyfð. Hann gaf síðan forsætisráðherra orðið. Hann sagði að það væri orðin föst regla þegar upp kæmu óvægin innanflokksátök í Samfylkingunni reyndu flokksmenn þar að beina athygli fjölmiðla að öðrum málum. Hann sagði Framsóknarflokkinn engin hagsmunatengsl hafa við fyrirtæki og að inn á Alþingi væri borin inn enn ein gróusagan frá Samfylkingunni. Hann tæki ekki þátt í því. Það gengi m.a. sú gróusaga í þjóðfélaginu að það væru sterk hagsmunatengsl á milli Samfylkingarinnar og Baugs. Hann tryði því ekki enda hefði engum þingmanni Framsóknarflokksins dottið í hug að taka það upp á Alþingi. Hann bað þingmenn Samfylkingarinnar að beina áhuga sínum að innanflokksátökunum en láta það vera að fylla Alþingi af gróusögum. Helgi Hjörvar hvatti forsætisráðherra til að hreinsa andrúmsloftið. Hann fór fram á það að meint tengsl forsætisráðherra við væntanlega bjóðendur í Landssímann yrðu að fullu gerð opinber og öllum aðgengileg í einkavæðingarferlinu þannig að almenningur á Íslandi gæti treyst því að þar réðu annarleg sjónarmið ekki ríkjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×