Innlent

Áfengiskaupaaldur ekki lækkaður

Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag samhljóða umsögn um frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, sem hefur það að markmiði að lækka áfengiskaupaaldur í átján ár. Ráðið lýsir sig andsnúið lækkun áfengiskaupaaldurs og telur að hann myndi auka aðgengi unglinga að áfengum drykkjum og vínveitingahúsum og þar með stuðla að aukinni drykkju þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×