Innlent

Frumvarp dregið til baka

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, dró í gær til baka frumvarp um að leggja niður tryggingadeild útflutningslána sem hún hafði áður mælt fyrir. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, vöruþróunar- og markaðsdeild Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins ákváðu árið 2002 að skrifa undir samning um endurskipulagningu tryggingadeildarinnar til þriggja ára. Valgerður sagði mikinn áhuga á að halda samstarfinu áfram. Því yrði samstarfssamningurinn endurnýjaður til þriggja ára.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×