Innlent

Ávarpaði jarðhitaráðstefnu

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra flutti í dag ávarp við opnun alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunnar sem að þessu sinni er haldin í Antalya í Tyrklandi, að því er segir í tilkynningu frá viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu. Um 1300 þátttakendur sitja ráðstefnuna.  Ráðherra minntist í upphafi á að Íslendingar hefðu verið stofnfélagar í Alþjóða jarðhitasambandinu og ávallt verið afar virkir í starfi þess enda væri jarðhitanotkun á Íslandi sú mesta í heimi, eða 54 prósent af orkunotkun þjóðarinnar. Nýting jarðhitans hefði á síðustu áratugum orðið samofin daglegu lífi og velferð þjóðarinnar auk þess að hafa sparað þjóðinni árlega marga milljarða króna miðað við sambærilega olíunotkun fyrri ára. Ráðherra greindi frá fyrirhuguðum rannsóknum við djúpborun rannsóknarholu sem getur skipt sköpum varðandi mögulega nýtingu jarðhitasvæða víða um heim. Þá fjallaði ráðherra um skyldur þjóða heims varðandi losun gróðurhúsalofttegunda en aukin jarðhitanotkun er af mörgum talin einn álitlegasti kostur aukinnar orkunýtingar, ekki síst í þróunarríkjum. Íslensk stjórnvöld hefðu í 26 ár rekið jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og væru þau afar stolt af því starfi er þar fer fram. Alls hefðu 318 nemendur stundað nám í skólanum frá upphafi en 80 þeirra sitja ráðstefnuna í Tyrklandi og eiga þeir hlut í 144 erindum af þeim 706 er þar verða flutt. Ráðherra greindi frá að fyrirhugað væri að tvöfalda alþjóðlega þróunaraðstoð Íslands á næstu árum og mun sú aðstoð einkum beinast að sjálfbærri nýtingu auðlinda og þar myndi aukinn stuðningur við jarðhitanotkun vega þungt. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styðja í auknum mæli við jarðhitanýtingu í þróunarríkjunum og hafa þegar verið undirbúin námskeið í Afríku, Asíu og Mið-Ameríku á vegum jarðhitaskólans á árunum 2006-2008 þar sem áhersla verður lögð á rannsóknir og nýtingu jarðhita í þessum ríkjum og rekstur jarðhitaorkuvera.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×