Innlent

Forsendur þurfa nánari skoðun

Öryrkjabandalagið segir að ýmsar forsendur, sem höfundur nýrrar skýrslu um fjölgun öryrkja gefur sér, þarfnist nánari skoðunar. Auk þess séu efnistök höfundar, Tryggva Þórs Herbertssonar, þröng en hann vann skýrsluna fyrir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og var hún kynnt í gær. Höfundur sleppi því til dæmis að fjalla um þá samfélagsgerð sem einstaklingurinn býr við, þróun hennar og ábyrgð þeirra sem að málum koma. Bandalagið segir að ekki sé að finna kerfisbundinn samanburð á velferðarkerfi Íslendinga og annarra þjóða sem við berum okkur saman við, hvorki varðandi fjölda öryrkja né upphæðir bóta. Þá megi efast um að skýrslan gefi raunhæfa mynd af tekjum öryrkja. Skýrslan staðfesti þó þau tengsl sem Öryrkjabandalagið hafi haldið fram að séu á milli atvinnustigs og örorku og komi sú niðurstaða ekki á óvart. Bandalagið leggur hins vegar áherslu á að ráðist verði að rótum vandans og lýsir sig reiðubúið til samstarfs við stjórnvöld og aðra sem að því máli þurfa að koma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×