Innlent

Enn stefnt að afgreiðslu

Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður menntamálanefndar Alþingis, segir enn stefnt að því að afgreiða frumvarp um Ríkisútvarpið á yfirstandandi þingi. "Við höldum áfram vinnu við frumvarpið í nefndinni fyrir og eftir helgi og gerum breytingar á því reynist það nauðsynlegt." Skiptar skoðanir eru um frumvarpið í óbreyttri mynd, einnig meðal stjórnarliða. Þá hefur frumvarpið verið gagnrýnt meðal annars í umsögnum BHM og BSRB.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×