Innlent

Þinglok á miðvikudag?

Óvíst er hvort þinglok verði á miðvikudaginn eins og gert hefur verið ráð fyrir því mörg stór og umdeild mál bíða enn afgreiðslu Alþingis. Samkvæmt starfsáætlun eiga þingmenn að fara í frí á miðvikudaginn eftir eldhúsdagsumræður. Í morgun hefur verið tekist á um samkeppnislög sem stjórnarandstæðingar telja veikja eftirlit með samkeppni hér á landi. Þá á enn eftir að afgreiða nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið, vatnalög og fleiri mál. Þó ber að hafa í huga að þessi staða kemur upp á hverju ári og hefur þingheimur gott lag á að spýta í lófana þegar fríið er fram undan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×