Innlent

Taka þátt í stjórnarskrárráðstefnu

Fjórtán félagasamtök hafa skráð sig til formlegrar þátttöku í ráðstefnu stjórnarskrárnefndar um endurskoðun stjórnarskrárinnar 11. júní næstkomandi, en frestur til skráningar rann út á sunnudaginn. Félögin eru: Frjálshyggjufélagið, Hið íslenska félag áhugamanna um stjórnskipan, Landvernd, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Mannvernd, Náttúruvaktin, Reykjavíkurakademían, Samband ungra sjálfstæðismanna, Samtök herstöðvaandstæðinga, Siðmennt, Skýrslutæknifélag Íslands, Undirbúningshópur kvenna um stjórnarskrárbreytingar, Þjóðarhreyfingin og Öryrkjabandalag Íslands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×