Innlent

Fáar konur í stjórnum innan ASÍ

Konur skipa aðeins níu af 66 stjórnarsætum í þeim landssamböndum sem aðild eiga að Alþýðusambandi Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar nema í stjórnmála- og viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Sex landssambönd eiga aðild að ASÍ. Segja má að jafnréttið sé mest hjá Landssambandi íslenskra verzlunarmanna þar sem sex karlar og fimm konur skipa stjórnina en þó er rétt að taka fram að konur eru rúm 62 prósent félagsmanna. Hjá Sjómannasambandinu, Rafiðnaðarsambandinu og MATVÍS er hins vegar engin kona í stjórn. Ein kona er í tólf manna stjórn Samiðnar og þrjár í þrettán manna stjórn Starfsgreinasambandsins þar sem konur eru 57 prósent félagsmanna. Konur eru alls rétt tæpur helmingur félagsmanna í þessum landssamböndum en aðeins 14 prósent stjórnarmanna. Ef allt er lagt saman má segja að kynjahallinn, það er fjöldi karla í stjórnum umfram hlutfall félaga í samböndunum, sé rúm 35 prósent. Það er Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, nemi í stjórnmála- og viðskiptafræði, sem stendur að rannsókninni og eru tölurnar frá árinu 2004. En hvað segir Alþýðusamband Íslands við þessu sláandi hlutfalli? Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, segir að forsvarsmenn ASÍ hafi ekki séð niðurstöðurnar en þeir viti að kynjahlutfall í mörgum stjórnum aðildarfélaga ASÍ og þeim stofnunum sem ASÍ eigi aðild að séu ekki í samræmi við fjölda félagsmanna og þar halli mjög á konur. Á síðasta ársfundi ASÍ hafi sérstaklega verið ályktað um þessi mál og óskað eftir því að sambandið hefði frumkvæði að því að móta jafnréttisstefnu sem hefði það m.a. að markmiði að bæta úr þessu. Halldór segi nýbúið að ráða starfsmann á skrifstofu sambandsins sem sinna eigi þessum málaflokki. Aðspurður hvort hann vonist til að þetta hlutfall breytist í nánust framtíð segir Halldór að sambandið bæði vonist til þess og ætli að vinna að því með markvissum hætti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×