Innlent

Gunnar tekur við bæjarstjórastarfi

Gunnar Einarsson tók nú klukkan ellefu við starfi bæjarstjóra Garðabæjar af Ásdísi Höllu Bragadóttur. Ásdís Halla er sem kunnugt er að taka við forstjórastarfi BYKO. Gunnar var áður íþrótta- og tómstundafulltrúi Garðabæjar. Fyrsta verk Gunnars sem bæjarstjóra verður að tilkynna um samþykkt bæjarstjórnar í morgun um umtalsverðar breytingar á gjaldskrám vegna þjónustu dagforeldra og einkarekinna leik- og grunnskóla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×