Sport

Skiles framlengir ekki við Bulls

Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum milli þjálfarans Scott Skiles og forráðamanna Chicago Bulls um framlengingu á samningi hans, sem verður að teljast nokkuð skrítið eftir óvænt gengi Chicago í vetur. Skiles á eitt ár eftir af þriggja ára samningi sínum við liðið, en hann er talinn hafa viljað semja upp á nýtt eftir að gengi liðsins tók stórt stökk upp á við í vetur, því eftir að hafa unnið aðeins 19 leiki árið áður, voru sigrarnir í ár 47 og viðsnúningurinn því gríðarlegur. "Ég er kannski barnalegur að halda að árangurinn í ár setji mig í eitthvað betri samningsstöðu, því ég er auðvitað ekki reyndasti þjálfarinn í bransanum," sagði Skiles. "Ég tel mig og umboðsmann minn vera nokkuð skynsama menn og því finnst mér með ólíkindum að hafi slitnað upp úr viðræðunum," sagði Skiles.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×