Sport

Spurs 2-0 yfir gegn Detroit

Manu Ginobili skoraði 27 stig fyrir San Antonio Spurs sem sigruðu meistara Detroit Pistons, 97-76 í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi NBA deildarinnar í körfubolta í nótt. Staðan í hálfleik var 58-42 fyrir Spurs sem leiða einvígið nú 2-0 en það lið sem fyrr vinnur 4 leiki hampar titlinum. Tim Duncan var næst stigahæstur Spurs með 18 stig og Bruce Bowen gerði 15. Hjá Detroit var Antonio McDyess atkvæðamestur með 15 stig og Richard Hamilton 14.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×