Sport

Cleveland ræður framkvæmdastjóra

Cleveland Cavaliers hafa gengið frá samningi við Danny Ferry, fyrrum leikmann liðsins, um að taka við stöðu framkvæmdastjóra félagsins, en það tekur loks af allan vafa um að Larry Brown þjálfari Detroit taki við stöðunni. Ferry hefur undanfarið verið á mála hjá meisturum San Antonio Spurs, þar sem hann lék um tíma, en nú hefur hann samið við félagið sem hann olli gríðarlegum vonbrigðum sem leikmaður á sínum tíma. Engum dylst þó að Ferry hefur reynslu af stórnarstörfum, því faðir hans var framkvæmdastjóri í NBA í 20 ár og félagið vonar að hann reynist því betur sem stjóri en leikmaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×