Sport

Rahim fer ekki til Nets

Framherjinn Shareef Abdur-Rahim mun ekki ganga til liðs við New Jersey Nets eins og til stóð, eftir að hann stóðst ekki læknisskoðun hjá félaginu. Hann er því með lausa samninga og verður áfram hjá Portland Trailblazers þangað til annað kemur í ljós. Nets voru þó ekki lengi að bregðast við og næla sér í annann framherja, því þeir hafa fengið Marc Jackson frá Philadelphia 76ers, sem einnig getur leikið sem miðherji. Það verða að teljast Nets nokkur vonbrigði að hafa mistekist að fá Rahim til sín, því margir voru farnir að tala um að liðið yrði í fremstu röð í Austurdeildinni í kjölfar komu hans til liðsins. Rahim hefur leikið með Vancouver, Atlanta og Portland á ferli sínum, en hefur aldrei leikið einn einasta leik í úrslitakeppninni þrátt fyrir að hafa skorað um 20 stig og hirt 8 fráköst að meðaltali á ferlinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×