Sport

Finley til Miami Heat?

Michael Finley, fyrrum leikmaður Dallas Mavericks í NBA körfuboltanum, er með lausan samning og eru fjölmörg félög að reyna að fá hann til liðs við sig. Eitt þeirra er Miami Heat en í gær sást hann fara á fund með Pat Riley, yfirmanni körfuboltamála hjá Miami. Komi Finley til liðs við Miami verður byrjunarlið þeirra magnað. Jason Williams leikstjórnandi, Dwaye Wade skotbakvörður, Antoine Walker lítill framheri, Michael Finley kraftframherji og Shaquille O´Neal miðherji.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×